Tuesday, November 16, 2010

obbbbs......

Hef ekki bloggað ógeðslega lengi! Sorry!
Skrýtið, það er allt bara orðið svo eðlilegt hérna, ég er bara orðin Mexicani og ekki jafn mikið nýtt og framandi að segja frá í hverri viku. Pálmatrén, sólin, hitinn og svitinn er bara orðið eðlilegt.

Hérna í Guadalajara er orðið kalt á nóttunni. Í gærkvöldi skalf ég og nötraði og tennurnar glömruðu. Leit svo á mælinn og hann sagði "bara" 15 stig! Ég er eiginilega orðin eins og einhver hitabeltiseðla!
Á daginn fer hitinn þó upp í miklu meira, 25-30, og þegar brennheit sólin skín beint á hausinn á manni- úff, maður er bara í svitabaði!

Annars er farið að sjást að það sé haust, laufblöðin sum orðin gul og farin að falla að einhverju leiti. Ávextirnir á trjánum byrjuðu að hrynja af þeim í seinasta mánuði, og það var sko ósjaldan sem maður fékk Guyaba í hausinn þegar maður var að rölta yfir til Theresu og Jenny í þarnæstu götu, enda þarf maður að labba undir trjágöngum:)

Mexico er svo falleg, ég er svo yyyyfir mig hamingjusöm hérna og þó að ég sakni Íslands og hlakki mikið mikið til að koma heim og hitta alla og sjá fallega landið mitt, þá finn ég mig ofboðslega vel hérna. T.d. núna um helgina, þá var löng helgi, og við fórum á ströndina. Puerto Vallarta er í 4ra tíma akstri frá borginni. Það er eins og að vera kominn í allt annað land þegar maður fer frá borginni yfir á ströndina. Hitinn, sólin, allt grænt, sólbaðsstrendur og meiri túrismi. Snekkjur, skútur, bátar, jetski, fallhlífar, sölumenn, sólbruni.... ohh hvað ég elska ströndina, myndi án efa fara aftur næstu helgi, en stóra systir vinar okkar er að gifta sig, svo við erum að fara í brúðkaupið allur vinahópurinn:)

Stefni á að fara aftur á ströndina þá helgina eftir bara:)

Brúðkaupið næstu helgi verður upplifun. Systir Etzells er aaaaalgjör bjútíkvín, listakona og dáldið artí! Með skollitað sítt liðað hár, og gengur um með tóbaksklút um hausinn og í hauskúpubol. Á drullunóg af peningum og er að giftast manni sem á Mo Funk, sem er lítið tattoo/art studio. Hef nokkrum sinnum farið þarna inn, og kannast við fólkið sem vinnur þarna og þetta er bara eins og í bíómyndunum, fáránlega artí stúdío, í anda LA Ink! Brúðkaupið verður því ááán efa töff. Allir kk eru búnir að vera að safna yfirvaraskeggi í mánuð, og allar kvk þurfa að vera í SVÖRTU, og maður mætir sko alltaf í síðkjólum í brúðkaup, þannig í dag ætla ég að fara með Theresu í leit að svörtum síðkjól! Mikið er ég spennt fyrir laugardeginum. Mexicönsk brúðkaup eru þekkt fyrir að vera roooooooosaleg. Það koma skutlur að sækja okkur stlepurnar og strákana okkar... og við keyrum í 40 min út fyrir borgina! Hlakka til að sjá hvernig þetta allt verður....

allavega, við fórum á ströndina núna um helgina. Ég er aldrei í skólanum á föstudögum og svo var frídagur á mánudeginum, og ég er heldur ekki í skólanum áþriðjudögum, svo mig langaði að fara snemma á föstudegi í rútu, og koma heim seint á þriðjudegi. Það gekk ekki alveg eftir, ég hafði nokkur verkefni sem ég þurfti að klára fyrir skólann, en kl.4 á föstudeginum lögum við Theresa af stað í rútunni á ströndina. Mættum þangað svona 10, og tókum taxa að leita að einhverju hóteli sem við gætum hent dótinu okkar inn á, farið í sturtu og drifið okkur svo til strákanna okkar, en einn þeirra á glæsiíbúð í háhýsi á ströndinni sjálfri. Við fórum þangað og héldum smá precopa, og fórum svo út á lífið:) Mikið gaman! á laugardeginum vorum við á ströndinni ég og Theresa, og fórum svo aftur til strákanna og fórum svo öll saman aftur út. Þar hitti ég strák sem ég hafði kynnst nokkru áður, en aldrei neitt talað rosalega mikið við hann. Allavega, hann spyr hvort við Theresa viljum ekki koma með sér og vinum sínum á bát á morgun, sunnudag, og þegar ég segi að það gæti verið gaman þá sagði hann bara að hann myndi hafa samband við mig á morgun um hádegi og pikka okkur upp, hvar sem við værum. Næsta dag, sunnudag, vöknuðum við Theresa og fórum út við sundlaug í íbúðinni sem vinur okkar á, á ströndinni. German, sá sem bauð okkur á bátinn, var í sambandi allan daginn og kl.3 sagðist hann vera að koma að sækja okkur og spurði hvar við værum. Ég sagði að við sætum bara við sundlaugina í þessu húsi og að við myndum bara stökkva í föt og vera ready eftir 2 mín. Hann sagði bara flott, þá kem ég og sæki ykkur á ströndina, komið upp við sjóinn núna!!

Ég hélt þetta væri nú bara eitthvað djók... en við Theresa löbbum að sjónum, setjumst í sandinn og erum að spjalla saman í sólinni með ískaldan bjór í hönd, þegar þessi líka riiiistastóra hvíta glæsisnekkja siglir upp að ströndinni, og út hoppar hvítklæddur maður um borð í gúmmíbát og tekur stefnuna til okkar. Andlitið á mér var eins og ég veit ekki hvað. Við hoppuðum um borð í gúmmíbátinn sem brunaði með okkur um borð í snekkjuna. Kynntumst þarna fleiri vinum Germans, kjöftuðum, dönsuðum og skemmtum okkur vel fram undir sólarlag... Þá sigldum við til baka í litla prívat höfn, og gátum gengið upp landganginn og BEINT inn í húsið sem German á!!! Þjónustufólk og allskonar lið var þarna á ferðinni, en við vorum 5 sem sátum eftir bakatil í snekkjunni í mánaskini og drukkum ískalt romm í kók:) Mikið var þetta notalegt. Heitt úti en ekkert svo rakt, svo þetta var bara fullkomið. Við ákváðum að fara ekkert á djammið þetta kvöld, heldur sátum bara þarna á snekkjunni þar til allir voru orðnir þreyttir og þá var mér skutlað heim á hótelið okkar Theresu:)

Næsta dag, mánudag, fórum við Theresa til strákanna okkar. Fórum út við sundlaugina þeirra við ströndina og töluðum endalaust lengi saman. Hún fer heim eftir nokkrar vikur, í lok desember, og það á eftir að verða svo mikið erfitt! :/
Fékk þá skilaboð frá German um að hann væri að fara til borgarinnar í dag, og spurði hvort ég vildi far. Theresa ætlaði til borgarinnar sama dag, og allir strákarnir, svo þó ég hefði viljað vera þarna allt mánkvöldið og nýta allllan þriðjudaginn í sólinni, þá meikaði ekki alveg sens fyrir mig að vera þarna ein, borga ein hótel og borga rútu til baka, svo ég þáði bara farið með German. Fer bara aftur á ströndina við fyrsta tækifæri. Vinur hans keyrði heim, og með í bílnum voru 2 litlar frænkur Germans og barnfóstran. Litlu stelpurnar spurðu og spurðu um ísland og ráku upp stór brún augu þegar ég sagði þeim frá öllu heima! ferðin heim tók þónokkurn tíma. Það hrundi brú þarna fyrir 2 mánuðum, 2 bílar hröpuðu niður og 4 létust. Þessvegna var umferðarteppa því vinnuvélarnar voru út um allt. Hræðilegt að sjá brúnna, bara gat! Þegar við loksins komum til Gdl, þá skutlaði German mér heim, og þegar ég var komin heim spurði hann hvort ég væri svöng og hvort mig langaði að koma með sér til Chapalla vatnsins, og við gætum borðað þar og komið heim bara næsta morgun, þar sem ég væri ekki í skólanum á þriðjudögum! Þetta hljómaði fáránlega freistandi, en klukkan var orðin margt og maður þreyttur og brenndur eftir sólina og ferðina heim:) Ég hef samt komið í húsið hans þarna í Chapalla, eins og í tímariti, með því flottara sem ég hef séð, eins og höll! Við fórum þangað seinustu helgi, ég Jenny og Theresa og 3 vinir okkar, og fórum svo til Germans að sækja hann og fórum öll saman á bát og wakeboard. Hann er mikið þarna við Chapalla vatn, þar sem hann var atvinnu wakeboarder einu sinni, vann X-games nokkur ár í röð! Ég kannski læt hann kenna mér, mér hefur ekki enn tekist að standa upp á brettinu:)

jæja, fer að koma hádegi, langur þriðjudagur framundan, kjólakaup og nóóóg af verkefnum fyrir skólann:)

kossar og knús heim frá Mexico :*

Monday, September 13, 2010

prófavika

seinasta vika og seinasta helgi var frekar dauf. Seinasta helgi fór mest í að læra, þar sem það voru first partials í vikunni sem leið. Kíktum reyndar út á föstudag og laugardag, en ég var eitthvað slöpp þannig það var frekar rólegt. á sunnudeginum seinustu var ég orðin ótrúlega slöpp en ég reyndi eins og ég gat að læra, þar sem að á mánudeginum þurfti ég að fara í 2 próf og var með 2 kynningar. Fannst ég vera alveg ólærð þegar ég mætti í skólann á mánudag og fannst mér ég ekki standa mig nógu vel enda var ég alveg að deyja. Fór til læknisins í skólanum sem sagði að ég væri komin með flensu, og 39 stiga hita. Fékk þessa fínu sprautu í rasskinnina og fullt af lyfjum og dröslaðist til að klára þennan langa 12 klukkustunda skóladag þar sem það eru engar fjarvistir leyfðar ekki einu sinni þó læknisvottorð sé við hendina.
Á þriðjudeginum var ekki skóli hjá mér, en ég var að fara í próf á miðvikudeginum þannig aftur reyndi ég að læra. Gekk ekki nógu vel, enda var ég bara fárveik. Endaði með því að kennarinn minn sagði að ég gæti tekið prófið seinna og ég ætti bara að halda mig heima á miðvikudeginum, sem ég og gerði. Þurfti reyndar að taka bussinn í skólann, fárveik, bara til þess að fá aðra sprautu í bossann frá lækninum. Síðan á fimmtudaginn var skóli, spænskupróf og kynning á viðskiptaáætlun, ég var í svitabaði, hóstandi og hás og massívt slöpp en komst samt í gegnum þann dag. Strax um kvöldið var mér farið að líða betur, sprauturnar og lyfin eitthvað farin að virka.

Á fimmtudagskvöldinu voru Junior Boys tónleikar á Americas, og allir strákarnir voru að fara svo við stelpurnar ákváðum að koma líka. Ég var uppi á 3.hæð að klára ritgerð eftir skóla á fimmtudaginn til að ég gæti komist á tónleikana, og þegar ég kláraði ritgerðina og fór niður þá voru svona 40 manns í stofunni hjá okkur því Sarah roommateinn minn var með afmæli:) Ég var ekki lengi að hressa mig við, og stuttu síðar fórum við á Americas að hitta strákana á Junior Boys tónleikunum. seinnipartinn á föstudag fórum ég, Teresa og Jenny til José vinar okkar. Sátum í sólinni við sundlaugina að sötra Tequila í Squirt sem er uppáhaldsdrykkur allra hérna. Ótrúlega ljúft að sitja bara og kjafta, og fleiri og fleiri vinir hans bættust svo í hópinn. Á endanum vorum við öll orðin ótrúlega hress og glöð og ákváðum að skella okkur á Bosse. Tjúttuðum þar smá, strákarnir keyptu flöskuborð, en fórum svo öll aftur heim til josé um 3 leitið, elduðum qesadillas og sumir fóru í sundlaugina. Bílstjórinn hans skutlaði okkur stelpunum svo heim. Alveg væri ég til í að eiga eitt stykki bílstjóra!!!

Á laugardaginn ákvað mín að reyna að næla sér í smá tan, þar sem það er búið að vera smá skýjað og regn hér í borginni seinustu daga því það voru stormar að ganga yfir suðurmexico. Ég lagðist í hengirúmið mitt, með ipodinn og dottaði on and off í 2-3 tíma. Vaknaði svo skaðbrennd með fáránlegt far eftir hálsmenið mitt haha! Burger vinur okkar kom og sótti okkur Jenny svo, rúntuðum á Starbucks í einn frappuchino, enda var mikill hiti þennan dag. Seinna um kvöldið fórum við Teresa og Jenny í Andares, glæsimollið, fórum út að borða á California Pizza Kitchen og drukkum bestu Pina Colada sem ég hef smakkað. Tókum svo taxa heim, og drifum okkur í afmæli hjá Michaelangelo, einum af strákunum. Fórum svo flest saman á stað sem heitir Van Go, rosa flottur staður, við höfðum aldrei komið þangað áður, en strákarnir eru meðlimir. Maður þarf að hafa meðlimakort með kennitölu, annars þurfa karlar að borga 10þúsund krónur inn og konur 8þúsund. Við fengum að fara inn í pörum, því hver og einn af strákunum má taka með sér vinkonu. Þetta var geggjaður staður, og okkur Jenny tókst að kynnast bæði eiganda staðarins og managernum þannig við getum farið þangað aftur án þess aðþurfa að borga aleiguna haha. Eigandinn bauð okkur upp á VIP svæðið, þar sem hann færði okkur tequilaflösku og við Jenny skemmtum okkur fram á rauða nótt.
Í morgun vöknuðum við ansi ferskar, fórum til Carlosar sem er með okkur í skóla í náttfataparty:) Smá svona þynnkuparty því allir voru að klára prófin fyrir helgi og það var vel fagnað um helgina. Komum svo heim, fórum í supermarkaðinn og við Teresa elduðum asískan hrísgrjónakjúlla. Í kvöld kom svo bróðir Carlosar að sækja mig og Sophie og við fórum til vinar hans að kjafta og horfa á The Book of Eli, sem er btw fáránlega góð mynd.

Á morgun er skóli allan daginn. Á þriðjudag er ég ekki í skólanum. Það er svo frí í skólanum á fim og fös því það er independence day á fimmtudag, þannig við stelpurnar ætlum að skrópa á miðvikudaginn og fara í almennilegt ferðalag núna á þriðjudag. Ástralarnir fóru í gær, laugardag, til Mazatlán, en við ákváðum að vera í borginni þessa helgi, og fara í skólann á mánudag, til að fá sem fæstar fjarvistir. Planið er því að taka flug eða rútu núna á þriðjudag og hitta restina af áströlunum í Mazatlán og vera fram á sunnudag bara í sólinni, skoða okkur um, borða góðan mat, og njóta þess að vera til. Áströlsku strákarnir eru allir surfarar þannig þeir ætla að kenna okkur að surfa og svona :)

Læt heyra í mér eftir ferðalagið til Mazatlán:)
Vona að allt sé gott, og það væri nú gaman að fá smá fréttir af klakanum:)

LOVE, Tori

Wednesday, September 1, 2010

Hitt og þetta


Mikið ótrúlega eru Mexicanar ljúfir. Það er sama hvar maður er, ef maður er að hitta fólk í fyrsta skipti þá kyssa allir mann á kynnina og kynna sig! Líka ef maður hittir stráka sem maður hefur talað við einhverntímann áður, þá koma þeir og kyssa mann á kynnina. Hugsið ykkur bara ef að í hvert skipti sem þið hittið vin ykkar þá mynduð þið gera það. Skiptir engu máli hversu miklir töffarar eiga í hlut, þetta er alltaf svona.

Í gær hélt Jenny matarboð. Hún er grænmetisæta svo hún eldaði portobellosveppi, tofu"kjöt"bita með sesamfræjum, ferskan aspas, marroccan grænmetis curry og svo var nóg af grænmeti. Hún bauð öllum áströlunum sem eru hérna í skiptinámi þannig ég var sú eina sem var ekki ástrali:) Seinna um kvöldið komu þó Roberto mexicaninn sem býr með okkur heim og Sara franska svo þau slógust í hópinn. Einn strákurinn kom með 6kílógrömm af súkkulaði, bræddi það og hrærði saman við rjóma og úr varð einn óhollasti eftirréttur sem ég hef smakkað, en góður var hann:) Þegar leið á kvöldið kom Guillermo vinur Jenny og mín í heimsókn með 2 vini sína. Annar vinurinn er að fara að fá sér tattoo með Sigurrósartexta og eeeelskar Sigurrós. Hann er að spila í hljómsveit og seinna um kvöldið keyrðum við framhjá riiisastóru skilti með mynd af honum og bandinu hans, þar sem þeir eru að fara að spila núna á morgun, fimmtudag. Kannski við Jenny kíkjum og tékkum á honum spila:) Allavega, þegar Guillermo mætti með vini sína þá auðvitað komu þeir til manns og kysstu mann á kynnina:) Þetta er svo skemmtilegur siður!

Allavega, okkur tókst að koma öllum áströlunum út úr húsinu rétt eftir miðnætti því restin af fólkinu sem býr með okkur þurfti að fara að sofa og svona. Það var anniversary á stúdentabar sem heitir Wall Street, svo allir fóru þangað og ég og Jenny, Guillermo og vinirnir 2 ætluðum að hitta alla þar stuttu síðar. Loksins þegar við lögðum af stað, þá stoppar löggan okkur. Mér varð frekar órótt þegar ég leit í baksýnisspegilinn í myrkrinu og sá dökka lögreglumenn í skotheldum vestum með vélbyssur á lofti nálgast bílinn. Löggan hérna er ofboðslega spillt, oftar en ekki stoppar hún fólk fyrir minnstu atriði og býðst til að sleppa fólki ef það gefi sér nú bara smá svona fyrir kaffinu. Oft dugir 500kall eða þúsundkall og málið er dautt. Hugsa sér. En allavega, þarna voru 4 vopnaðir löggumenn og ég vissi að það væri eitthvað slæmt í vændum. Jenny og Guillermo voru í bíl á undan okkur og ég var í bíl með vinunum tveimur. Löggurnar báðu strákana um að koma út úr bílnum, en strákarnir sögðu mér að halda kyrru fyrir inni í bílnum. Ég sá allt sem gerðist, löggan leitaði á þeim, sagði þeim að snúa sér að bílnum og ætlaði að járna strákana. Önnur lögga reif upp bílhurðina þar sem ég sat og lýsti með vasaljósi og skoðaði allt. Spurði mig allskonar spurninga á spænsku, hver ég væri, hvaðan ég væri, hvað ég væri að gera og svona, að ég held bara til að trufla mig frá því að fylgjast með hvað þeir væru að gera við strákana. Löggan ætlaði að setja strákana í járn og sagðist ætla að setja þá í fangelsi, þeir væru í djúpum skít. Strákarnir voru kurteisir og sögðu bara að þeir vildu fá að vita hvað í ósköpunum þeir hefðu gert af sér, þeir mættu alveg járna þá og stinga þeim í steininn bara ef þeir gætu gefið þeim ástæðu. Löggan sagði bara að þeir væru bara í vondum málum, það biði þeirra ískalt fangelsi og að þetta væri bara búið fyrir þá. Strákarnir voru blásaklausir, við vorum bara að keyra og ekkert í gangi. Annar strákurinn er sonur embættismanns skilst mér, eða einhvers fasteignakalls, og hann tók því upp símann sinn og hringdi í lífvörð pabba síns, sagði að löggan gæti útskýrt þetta fyrir honum. Löggan sagði honum að láta símann vera, en strákurinn sagði að þeim væri velkomið að járna sig en hann vildi bara láta pabba sinn og lífvörðinn vita hvað væri í gangi. Þá leit löggan á skilríkin hans, kannaðist við eftirnafnið og sagði strákunum að drulla sér í burtu!!!

Við sluppum þarna með skrekkinn, en löggan á þetta til. Reynir að hræða fólk þannig að maður dregur upp 5þúsundkall kjökrandi og grátbiður þá um að járna sig ekki. Sem betur fer urðu strákarnir ekki hræddir og sögðu að löggan mætti gera hvað sem þeir þyrftu að gera, bara svo lengi sem hann léti þá pabba sinn vita hvað væri í gangi. Löggan hefði auðvitað ekkert getað mætt með 2 blásaklausa stráka og stungið þeim í steininn, þetta var bara til að reyna að hræða okkur og græða pening.

Í dag var ég í skólanum til 5. Búin að vera ótrúlega þreytt í allt kvöld, miðvikudagar eru aðal djammdagarnir, en ég er bara í náttfötunum með heitt kakó, tónlist og Jenny er hérna hjá mér að læra:) Próf á morgun, og svo verður næsta vika helluð. Endalaus próf, ritgerðir og verkefni!! Guillermo og strákarnir buðu okkur Jenny að koma með sér þessa helgi á einhverja einkaeyju sem fjölskylda annars stráksins á. (þessi sem hringdi í lífvörðinn). Það væri óskandi að komast á ströndina þessa helgina, halda í tanið sem ég nældi mér í á Sayulita seinustu helgi, en ég held að við endum í bænum þessa helgina, að læra og svona. Mikið væri samt notarlegt að komast í smá roadtrip, taka bara bækurnar með og slaka á í sandinum. Við sjáum til hvernig fer. Næsta vika verður helluð í skólanum og svo helgina eftir þá förum við í 9 daga ferðalag suður til Mexico að skoða allan suðurhlutann, pýramída og merka staði. Hlakka mikið til!

Theresa fer á morgun til San Fransisco. Ég náði að versla mér nokkra skó og svona sem hún ætlar að koma með til mín. Þrátt fyrir að Berskha og skóbúðir hérna séu mjööög ódýrar, þá er maður farinn að borga tvöfalt verð þegar maður er að kaupa Nike, Aldo skó, Nine West eða álíka merki. Málið er að það eru engin gæði í ódýru skóbúðunum og skórnir bara hrynja í sundur. Þessvegna ætlar Theresa að vera engill og koma með 4 ný pör handa mér úr uppáhalds búðinni minni:)

ég er ennþá svo heilluð eftir seinustu helgi.... hugsa sér, við vorum þarna sirka 10 krakkar 20-23 ára, með heilt resort útaf fyrir okkur. 10 manns á vakt allan sólarhringinn, bara fyrir okkur. Þjónar, þriffólk, kokkar, sundlaugavörður, öryggisvörður, bílstjóri oflr. Þessi helgi var svo mögnuð. Gome, strákurinn sem bauð mér er að fara til Kína núna um helgina og verður í 1 ár. Dáldil synd að hann skuli vera að fara. Hitti hann kannski á morgun, hann ætlar að sýna mér dýrin sín. Mamma hans er grænmetisæta og berst fyrir dýraréttindum og friðun Jagúara á vesturströnd Mexico. Þau áttu 2 jagúarhvolpa í 2 ár, en í fyrra dóu þeir báðir þegar stóri fellibylurinn gekk yfir. Þau áttu líka úlf sem dó fyrir 2 árum, 12 ára gamall. Núna eiga þau einhverskonar apa/þvottabjarnadýr sem ég veit ekki hvað heita á íslensku. Heyrði hljóðin í þeim um daginn þegar ég fór heim til Gome, en náði ekki að sjá þau. Hlakka til að sjá þau vonandi á morgun og fá að halda á þeim:)

Á í miklum erfiðleikum með að ákveða hvernig helgin verður, hvort við Jenny ættum að taka stefnuna á ströndina, jafnvel þá á eyjuna með Guillermo og vinum hans... eða hvort við ættum að vera bara í bænum, læra og kíkja út um helgina. Juan Pablo vinur minn, sem ég fór með til Manzanillo á ströndina þarseinustu helgi, er að fara aftur til Ítalíu á sunnudag, þar sem hann er í skóla, þannig ég sé hann svo ekkert aftur fyrr en um jólin. Gome og strákarnir sem við vorum með um helgina eru líka að fara að halda kveðjuparty handa Gome á einum skemmtistaðnum þar sem hann fer svo til Kína á sunnudag. Og ég hef ekki hitt Daniel vin minn heillengi og hann var að biðja mig um að koma að gera eitthvað skemmtilegt um helgina, þannig það er svosem nóg að gerast í borginni:) Langar samt mikið í sand og hita, því svo verð ég næstu 2 helgar með krökkunum úr skólanum að ferðast um suðurMexico, með derhúfu, í ljótum sandölum og með bakpoka haha:)

ó, já, seinustu helgin þegar við vorum með Gome í Sayulita þá keyrðum við á sunnudeginum til Puerto Vallarta. Puerto Vallarta er bara í 15 min akstri, Sayulita ströndin tekur við af Puerto Vallarta. Við Jenny vildum eyða sunnudeginum í að fá bílstjórann til að skutla okkur í miðbæ Puerto Vallarta og svo gætum við tvær eytt deginum þar, keypt fallega minjagripi, handofin teppi og skoðað okkur um. Gome tók það ekki í mál, því það hafði sprungið sprengja, granade, á klúbb þarna í Puerto Vallarta á fimmtudeginum. 16 manns alvarlega slasað og það þurfti að aflima amk 2. Innherjaupplýsingar segja það að þessi sprengjuárás sé merki um að þetta verði næsti átakastaður gengjanna, þeas að á næstunni muni þessi bær vera targetið þeirra og eitthvað mjög slæmt gerast. Þessvegna vildi Gome alls ekki leyfa okkur að fara þarna um, svo úr varð að hann kom með okkur og bílstjórinn keyrði okkur í gegnum bæinn í skothelda bílnum bara svo við gætum fengið að sjá það helsta í bænum. Betra að vera öruggur. Svo sprakk sprengja líka núna um helgina í Cancún, þar sem ég ætla að ferðast um í páskafríinu. 8 manns létust. Þetta er nú ljóta ástandið hérna.

En ég hef það ótrúlega gott, ætla að halda áfram að læra smá núna fyrir prófið á morgun! Market Intelligence- ég rústessu :)

Kossar og knús á klakann
- Tori <3

Sunday, August 29, 2010

PARADÍS Í MEXICO

þessi helgi.... var án efa magnaðasta helgi lífs míns!

seinasta vika var líka góð:
Mánudagur: var í skólanum til hálf10, Rogelio og Luis vinir mínir skutluðu mér heim, allir roommatearnir mínir voru heima, svo við vorum bara að hlusta á tónlist, kjafta, elda mat og svona...
Þriðjudagur:
Miðvikudagur: ég og Jenny fórum á Chalet. Restin af hópnum fór á Passion Pit tónleika en við ákváðum að sleppa því, þar sem Lady Gaga er væntanleg ásamt fleiri tónleikum sem við viljum frekar fara á :) Við fórum á klúbb sem heitir Chalet, og JuanPis vinur okkar er manager þar svo við komumst strax inn, en þetta er mjög eftirsóttur klúbbur, aðalkvöldin eru miðvikudagskvöld og miiiikið um manninn þá.
Fimmtudagur: tók ein bussinn heim úr skólanum, hann fór einhverja hliðargötu sem var nóg til þess að rugla mig í ríminu, þannig ég þurfti að hoppa úr bussinum og taka taxa heim. Var reyndar bara í næstu götu, en þetta er svo stór borg að það að bussinn skyldi taka smá hliðargötu dugði til að ég kolvilltist. Þeir gera þetta strætóarnir! Um kvöldið kom Theresa til mín, herbergið mitt uppi á 3.hæð er loksins tilbúið:) Þegar maður labbar inn í Casa Tequila þá er gangur og stofur á sitthvorri hlið og eldhús og svona. Alltaf einhverjir roommates þar. Þegar maður labbar gegnum húsið er smá opin verönd. Þar er þvottahúsið og brunastigi. Þegar maður labbar upp brunastigann þá býr Aurelie á 2. hæðinni og uppi á 3.hæðinni er pleisið mitt. Maður labbar inn í smá forstofu. Þar á að koma ísskápur og sófi. Núna er Jenny vinkona mín með rúm þar, því hún ætlar að gista hjá mér í mánuð. Inn af forstofunni er pínkulítið skrifstofuherbergi og svo er gangur sem er með nýja sæta baðherberginu okkar og svo hjónaherberginu mínu. Hjónaherbergið er stórt og bjart með glugga með þvílíku útsýni, walk in closet fyrir fötin mín og draslið og svo er hurð hliðina á rúmminu mínu sem liggur út á þakið:) á morgun kemur skúringakonan og þrífur þakið fyrir mig svo ég get keypt húsgögn í vikunni:)
Semsagt þá var ég í því að flytja allt dótið mitt upp á fimmtudaginn, það kom lásasmiður að laga lásinn og einhver var að setja sturtuhengi og svona upp:) klukkan 10 var allt ready og þá hringdum við stelpurnar í strákana og buðum þeim í smá heimsókn. Fengum okkur bjór uppi á þaki hjá mér, ég, Jenny, Fiona, Sophie og svo LuiMi og Michelangelo. Theresa kom svo, og Ivan vinur okkar sótti okkur og tók okkur með sér í party hjá Mexicönskum krökkum, sem eru öll nemendur við TEC. Gaman að kynnast fleirum úr skólanum. Við vorum ekki lengi því Rojo og fleiri úr hópnum komu í partyið og við ákváðum að fara á klúbb sem heitir Americas því það var einhver frægur Þýskur dj að spila og Theresu dauðlangaði að fara. Mér leist ekkert á blikuna þegar ég kom, þetta var aðeins of mikið fyrir mig, ég týndi Theresu og hópnum og það var ekkert samband en sem betur fer náði ég í vin minn sem heitir Gome og hann kom og sótti mig og ég fór með honum á annan stað sem heitir La Mala Noche. Hann er alveg týpískur mexicanskur staður. Allir standa bara eða sitja við flöskuborð, og í miðjunni er bar, og uppi á barborðinu er karl og kona sem syngja og syngja týpísk mexicönsk lög og allir syngja með. Dáldið svona Lífið er yndislegt fílingur. Gome og vinir hans keyptu kampavín, svo ég poppaði kampavínsflösku og það var kveikt á blysum og þetta endaði sem fínasta kvöld:)

á föstudaginn var hópurinn okkar búinn að ákveða að fara til Puerto Vallarta, sem er strönd við Kyrrahafið. Það var allt eitthvað óljóst í lokin þar sem helmingurinn af hópnum vildi fara til Tapalpa í staðinn, sem er fjallabær, og það voru allir að reyna að fá alla hingað eða þangað. Því ákvað ég bara að sleppa þessu veseni og þyggja boð Gome um að fara í paradísar resort á strönd hliðina á Puerto Vallarta (20 min frá), sem heitir Sayulita! Gome sagði að vinur hans ætti ótrúlega fallegt resort þarna, og það hefði verið valið topp 10 fallegustu strandhúsum heims árið 2009. Hann ætti líka snekkju þarna sem við gætum farið á ef veður leyfði. Ég var aldeilis ánægð með ákvörðunina og tókst að draga Jenny með mér. Á föstudeginum klukkan 3 mætti svartur kaggi að sækja okkur. Inni í kagganum var Gome, 2 vinir hans og BÍLSTJÓRI. Bíllinn var skotheldur, með 3földu gleri og allskonar aukabúnaði. Það kom seinna í ljós að þetta var bílstjóri Gome og þetta paradísarresort var resortið HANS, en ekki vinar hans eins og hann sagði. Við tókum 3,5 tíma roadtrip á þetta, brunuðum á ströndina í skothelda jeppanum, bílstjórinn spilaði tónlist í botni og við skemmtum okkur konunglega. Þegar á leiðarenda var komið voru vinir Gome mættir. Þetta var alveg eins og í Gossip Girl, stelpurnar eru allar með sílicon, hafa farið í nose-job og meira að segja strákarnir hafa farið í nose job, fengið sér brjóstvöðvaimplants og allskonar aðgerðir. Allar stelpurnar voru með Bvlgari sólgleraugu og Luis Vuitton töskur og strákarnir allir í Ralp Lauren, Polo eða La Coste fötum. Engu að síður voru þetta fínustu krakkar, við skemmtum okkur svo ótrúlega vel:) fórum öll í sundlaugina, sem var byggð á stalli í fjallshlíðunum þannig það leit út eins og maður væri oní sjónum. Resortið var þvílíkt fallegt, maður þurfti að keyra langa leið oní á til að komast þangað. Þegar komið var að því var hringaðkeyrsla og gosbrunnur, og það var risastórt stráhús í miðjunni, með sófum, sólstólum, eldhúsi og plássi fyrir þjónustufólkið. Maður labbaði niður til að komast að sundlauginni, smá helli fyrir framan sundlaugina til að slaka á inni í, og svo var hægt að labba niður á ströndina. Einnig var jógapláss, á smá tanga sem teygði sig út í sjóinn, hvítur sandur og kaktusar, svo hægt er að gera jóga þarna á morgnana úti í miðjun sjónum. Fyrir ofan herlegheitin, lengra uppi í fjallshlíðunum eru brýr og stígar sem liggja að sirka 10 hvítum stráhúsum, sem eru bara gestahús fyrir hvern og einn. Þetta var ótrúleg lífsreynsla. Þjónustufólkið bar ofan í okkur mat og veitingar, maður bara bað um hvað sem mann vantaði, jógúrt, tacos, scrambled eggs, gateorade, bjór, kokteila, name it, það var komið strax. Myndirnar segja meira en þúsund orð....
Föstudagur

Monday, August 23, 2010

undarlegir dagar







seinasta vika var þétt bókuð.
Á mánudaginn var ég í skólanum frá 10-hálf10, allt of langur dagur!! Daniel vinur minn kom og sótti mig í skólann og keyrði mig heim, enda er ekki sniðugt að vera ein í bussinum eftir kl9 þegar það er komið myrkur, alein, ljóshærð, með fartölvu og töskur...
á þriðjudeginum kom JuanPablo að sækja mig, og við fórum og hittum nokkra krakka á einhverjum veitingastað, fengum okkur einn bjór og mazcal skot með chillisalti, mexicanar eru voða heitir fyrir þessu. Síðan fórum við til stjúpbróður hans sem á Urban hair saloon, sem er flottasta hárgreiðslustofa sem ég hef séð. Frægt fólk kemur þarna og fær sér herbergi. Einhver ótrúlega þekktur hárgreiðslumaður er með skrifstofu þarna, ekki Paul Mitchell en einhver svipaður. Þvílík stofa, kaffihús og einkaherbergi, koníaksstofa fyrir karla, og prinsessuherbergi fyrir konur. Fórum svo út að borða, röltum aðeins um bæinn, og fórum svo á Wings Army að hitta alla krakkana:) Það byrjaði að hellirigna svo við forum bara heim um miðnætti.
á miðvikudag var ég í skólanum til 9 um kvöldið að læra. Við Theresa sátum bara úti á skólalóðinni fyrir framan Starbucks að horfa á körfuboltaliðið æfa sig, á bekk undir sólhlíf að skrifa ritgerð:) Miðvikudagar eru aðal partydagarnir í Mexico, þannig við keyptum nokkra bjóra á leiðinni heimúr skólanum og sátum svo í klessu inní mjög bouncy og þröngum strætó, sötrandi ískaldan bjór í hitanum og rakanum, meðan betlari spilaði á gítar inní í strætónum og söng hástöfum. JuanPablo kom svo að sækja mig og við sóttum Theresu og fórum á pínkulítinn bar sem heitir El Rey. þar voru allir krakkarnir fyrir, og við fórum öll saman á Chalet, sem er stæsti skemmtistaðurinn og á miðvikudögum er hann troðfullur!! aðalkvöldið!

á fimmtudaginn var ég aftur til kl.9 í skólanum að læra. Tók svo strætó heim með Theresu og Söru og frönskum strák. Fórum svo í party í nýja húsinu sem landlordinn okkar var að kaupa. Nú á hann 3 hús, mitt hús, Theresu hús og þetta nýja sem er í hverfi sem heitir Guadalupe. Í partyinu voru allir íbúarnir úr öllum 3 húsunum, og það voru kokkar að elda mat og kanínur sem hoppuðu um á veröndinni og í garðinum milli pálmatrjánna. Seinna kom JuanPablo og strákarnir og sóttu okkur og við JuanPablo á bar sem heitir Americas, og er í uppáhaldi hjá þeim strákum. Ég hafði aldrei komið þangað áður og fílaði þann stað ekki of mikið. Smakkaði mjög týpískan drykk sem samanstendur af tómatsafa og bjór, salti og einhverjum spicy sósum. Mexicanar drekka þetta þegar þeir eru þunnir og segja þetta besta meðalið. Áhugavert að Mexicanar vilja hafa drykkina sína beiska og bitra frekar en sæta. Það drekkur enginn kokteila hérna. Bara tequila, tequila í kók eða lemonade, jagermeister er í uppáhaldi hjá fólki, og svo auðvitað bjór:)

á föstudaginn var Beach Camping Trip á strönd sem heitir La Llorona. Ég ætlaði að fara, var búin að ákveða það, og rúturnar áttu að fara kl.7 um morguninn. Juan Pablo bað mig um að fara ekki, sagði að þetta væri hættulegur staður, það yrði einhver rændur og það myndi eitthvað gerast. Ég sagðist verða að fara, þar sem það væru svo margir krakkar úr skólanum að fara. Hann grátbað mig um að fara ekki og bauð mér í staðinn í strandíbúðina sína í manzanillo, sem er á vesturströnd Mexico. Það varð úr að við JuanPablo keyrðum af stað á föstudaginn fyrir hádegi, tókum geggjað roadtrip á þetta og brunuðum með græjurnar í botni til Manzanillo. Þegar þangað var komið beið okkar penthouseíbúðin hans, og þegar við vorum komin inn, komu þjónar inn með kókoshnetur, sjávarrétti, rækjur, kaldan og ferskan fisk og allskonar góðgæti. Þetta var ótrúlegt. Ég fór í klukkutíma út við sundlaugina að reyna að næla mér í smá tan, þjónustufólkið kom með dýnu handa mér og það var stjanað við mann. Síðan keyrðum við í miðbæinn og röltum þar um. Loksins komst ég aftur í Mexicanskan bæ, Guadalajara er stórborg, tískuvöruverslanir og Escalade-ar, en þarna fékk ég sömu tilfinningu og fyrstu dagana mína þegar ég var með Páulinu og fjölskyldu í Sahuayo og Ocotlán og á svæðinu kringum Lago de Chapalla. Hitinn var óbærilegur í Manzanillo, maður bara svitnaði og svitnaði og ég held það hafi verið kringum 40 gráður, allavega sá ég að um miðja nótt voru 27 gráður í myrkrinu, þannig brennandi sólin gerði daginn nánast óbærilegan! Ég keypti ótrúlega fallegan handmálaðan leirbolla og við borðuðum arroz con letche (sem er grjónarétturinn sem ég lærði að gera í matreiðslutíma um daginn).

Um kvöldið fórum við út að borða á sushi stað, fórum í wal mart og keyptum inn, og skemmtum okkur vel um kvöldið. Á laugardeginum var mín vöknuð kl.9, og mætt fyrst út á sundlaugarbakkann. Sandurinn liggur beint upp að sundlaugarbakkanum og sjórinn var svo úfinn að hann náði alveg yfir sandinn og snerti sundlaugarbakkann. Það voru rauð flögg sem vöruðu mann við að fara í sjóinn svo ég lá bara og tanaði á sundlaugarbakkanum, þar til JP vaknaði og mætti út og á eftir honum var þjónn með morgunmat handa okkur.

Ég semsagt fór ekki í Beach Camping trip til La Llorona því JP sagði mér að það væri hættulegt og ég ætti frekar að koma með sér. Sá hörmulegi atburður gerðist á La Llorona, meðan ég var í Manzanillo eftir algjöra skyndiákvörðun, að frönsk stelpa, yndisleg og falleg drukknaði. Kyrrahafið og sterkir Mexicanskir hafstraumar hrifu hana á brott, og hún fannst á laugardaginn eftir að lögreglan og herinn hafði leitað að henni allan daginn. Sawa Thépot var hress stelpa, mín fyrstu kynni af henni voru áður en ég fór út, hún fann mig á facebook og byrjaði að t ala við mig þar sem við vorum báðar að fara til Mexico. Fyrstu vikuna sendi hún mér message og spurði hvort ég hefði áhuga á að flytja inn með sér því hún hefði fundið fallegt hús og vantaði roommate. Ég var þá búin að finna húsið mitt á Calle Tequila svo það varð ekkert úr því. Alltaf þegar maður hitti hana í partyum var hún sú hressasta á svæðinu, talaði við alla og var svo opin og hamingjusöm. Það var tilviljun að ég fór ekki í þessa ferð. Sjórinn var ógurlegur á La Llorona, og ég get rétt ímyndað mér það, þar sem ég var á sömu strönd nema bara í 2-3ja tíma akstri frá og sjórinn hjá okkur var hættulegur og rauð flögg út um allt. Sarah, franska stelpan sem býr í húsinu mínu var mjög góð vinkona Sawa, þær komu saman hingað til México og voru að ferðast saman fyrstu vikurnar. Seinustu dagar á Calle Tequila hafa verið undarlegir, Sarah er sterkasti karakter sem ég veit um, en henni líður illa. Það var hún sem sá Sawa seinast þegar þær voru að hoppa um í sjónum, og það var hún sem tilkynnti hvarf vinkonu sinnar og það var hún sem þurfti að bera kennsl á hana. Það verður minningarathöfn á miðvikudaginn. Þetta er voða skrítið allt. Í húsinu mínu búa semsagt Sarah og Aurelie, og svo 2 mexicanar, Pedro og Roberto, og svo voru í dag að flytja inn 3 ástralskar stelpur, Fiona, Sophie og Jenny. Aurelie lenti í því á La Llorona að öllu dótinu hennar var rænt, passport, peningum, kortum, síma, bara öllu! Hún þarf því að fara alein í flugvél til Mexico City núna á föstudaginn og fá nýjan passa, því hún er búin að vera í landinu í næstum 30 daga, en maður þarf að fara í immigration innan við 30 dögum eftir komu til Mexico nema maður vilji eiga á hættu að borga háar sektir eða vera fangelsaður. Þessi ferð reyndist því vera ein martröð og ég er fegin að ég skyldi hafa ákveðið að vera ung og vitlaus og fara frekar með vini mínum í íbúðina hans, vitandi að hann myndi passa upp á mig.

Mamma, núna veistu nákvæmlega hvernig þetta var allt. Það er allt í góðu með mig og stelpurnar hafa það líka gott. Við förum öll ótrúlega varlega, og þetta allt varð til þess að Mishael, landlordinn, er búinn að vera í húsinu okkar í allan dag að fara yfir lása og annað varðandi öryggi og bara já, til að öllum líði vel.

Herbergið mitt uppi á 3 hæð er tilbúið. Það kemur samt lásasmiður á morgun og lagar lásinn, þannig ég gisti í gamla herberginu mínu aftur í nótt, flyt upp á morgun þegar lásinn er orðinn 100% og það verða líka settar upp gardínur á morgun.

Ég var í skólanum í dag frá 10-21.30, bara með klukkutíma pásu yfir allan daginn og sem betur fer skutlaði vinur minn úr skólanum mér heim. Hann heitir Rogelio og er voða nice. Hann sagðist geta skutlað mér alltaf á mánudögum, því þá erum við saman í tíma til hálf10 á kvöldin og hann býr ekki langt frá. Ég er mjög þakklát fyrir það, það er ekki safe að taka bussinn eftir myrkur. Á morgun, þriðjudag, er ég ekki í skólanum. Ætla að sofa út enda var ekki mikið sofið í nótt. Ég kom til Guadalajara frá Manzanillo á laugardaginn, og Jenny kom til mín (þar sem allir voru á La Llorona) og við sátum úti á svölum í hengirúminu með mojitoa og kíktum svo út bara við tvær að kjafta og hitta vini. Á sunnudag vaknaði ég snemma, því Theresa og Sarah voru að koma í bæinn úr þessari skelfilegu ferð frá La Llorona, og theresa sagðist þurfa að fara út og gera eitthvað, henni leið illa, svo við Theresa og Jenny fengum okkur göngutúr um hverfið, fengum okkur ís, kjöftuðum, og fórum svo í poolparty hjá JuanPablo um kvöldið. Það var því smá þreyta í okkur í morgun, og lítil orka í þennan 12 klukkustunda skóladag. En já á morgun er frídagur, þannig ég ætla að sofa út, pakka saman dótinu mínu og flytja það upp í nýja herbergið:) Svo eftir hádegi ætla ég Jenny og Theresa að fara saman í Andares, flottasta mollið, og um kvöldið ætlum við að hitta strákana, fara á Hooters (ójá, ég átti hugmyndina) og fara svo í VIP cinema, að horfa á Inception. Það er eins og vip bíó á íslandi, nema það eru þjónar og bar, og þetta kostar 100pesóa, sem er 950kall! Eftir bíó ætlum við að hitta restina af krökkunum á Wall Street, sem er studentabar.

Á tímum sem þessum skiptir mestu máli að halda hópinn og vera með fólki sem maður treystir. Það er óhugur í okkur öllum, og andrúmsloftið er skrítið. Í kvöld, eftir að ég kom heim úr skólanum kl.10, þá er ég bara búin að vera frammi í stofu með roommate-unum mínum að kjafta, læra spænsku, borða og bara vera öll saman frammi í stofu. Það gerir allt miklu betra að hafa góða að.

Vona að allt sé gott á Íslandi, mamma, þú mátt hringja í mig á morgun ef þú vilt. Ég verð með símann á mér,

LOVE
-Tori

Sunday, August 15, 2010

Helgin í Mexico

síðustu dagar hafa verið frábærir!
Á fimmtudag fórum við Theresa í Gallerias mollið- stærðin á þessum mollum er ólýsanleg! Þegar ég var nýkomin heim hringdi JuanPablo vinur minn og sagði að hann væri að fara að koma að sækja mig- við værum að fara í party! Hann og Chinos komu að sækja okkur og við fórum heim til Juan Pablos, en hann býr í lúxushverfi sem heitir Santa Anita og er í hinum enda borgarinnar, alveg syðst. Húsið er risastórt, með sundlaug, foss, sundlaugarhúsi, hengirúmi, útibar og name it... við slógum upp smá partyi og fleiri gestir komu. á einhverjum tímapunkti flæddi upp úr heitapotti inni hjá honum, þannig allt parketið var á floti. Við reyndum að þurrka það sem við gátum, en honum fannst þetta ekkert mál. Hringdi bara nokkur símtöl og fékk menn til að mæta á staðinn og skipta um parket í öllu svefnherberginu! Bara sí svona!

á föstudeginum bauð JuanPablo mér út að borða í hádeginu í golfklúbb í Santa Anita, sem hann er meðlimur í. Þetta líf sem þessir strákar er mjög skrítið. Þeir keyra allir um á hvítum jeppum, ganga með Breitling eða ReymondWeil úr og eru allir með nýjustu týpuna af RayBan. Það er mjög gaman að hanga með þeim og ég er mjög fegin að hafa kynnst þeim, því þeir passa vel upp á mann og bjóða manni að koma hingað og þangað og gefa manni tækifæri á að sjá hluti sem maður fengi ekki að sjá annars. Það er aldrei neitt vesen, þeir bara láta sækja mann, skutla manni eða kaupa það sem vantar. Samt ótrúlega skrítið að sitja í bíl með þeim og keyra svo eftir götunum þar sem betlararnir banka á gluggana og biðja um nokkra pesóa í skiptum fyrir gluggaþvott eða tyggjó.

seinna á föst.kvöldinu kom JuanPablo og Etzell vinur hans aftur að sækja mig og ég fór með þeim í eitthvað party. Þar var mikið af fólkinu sem ég hafði hitt í þriðjudagspartyinu (þegar við fórum óvart í vitlaust party og enduðum í villunni þeirra bræðra Daniels og Javiers). Gaman að vera í partyi með infæddum og kynnast þeim. Seinna um kvöldið fórum við öll á klúbb sem heitir Bosse og þar voru keypt nokkur flöskuborð og fish bowls og dansað fram eftir nóttu:) Strákarnir voru að fara daginn eftir í Tequila verksmiðju sem fjölskylda eins þeirra á og buðu mér og Theresu að koma með, og gista í eina nótt á Tequila býlinu:)
Við þáðum það og kl.2 á laugardeginum kom Etzell og Chino að sækja okkur. Það var hækkað í græjunum, og brunað í villuna þeirra Daniels og Javiers, þar sem sirka 15 manns beið eftir okkur. Við fórum öll á 3 bílum (í mexico er löglegt að keyra með eins marga og komast í bíl, uppi á þaki, í skottinu, eða á pallinum). En þetta voru Escalate'ar með plássi fyrir 7 þannig það var nóg pláss fyrir okkur öll. Roadtrippið var geggjað, við skemmtum okkur ótrúlega vel.

Þegar við komum á leiðarenda voru verðir sem opnuðu fyrir okkur riiisastórt gyllt hlið, með Camarena logoinu, sem er logo Tequilans sem fyrirtækið framleiðir. Við keyrðum inn á lóðina, sem var eins og búgarður, verskmiðjan, gosbrunnar, tún, hestar, glerhús, kapella og skrautgarður. Okkur var bent á að fara í glerhúsið, og þar biðu okkar þjónar og uppdekkuð borð!
Við fengum ótrúlega gott kjöt, held það hafi verið svínakjöt og auðvitað var salsasósa og maístortillur með. Það er sama hvaða kjöt maður fær sér hér í Mexico, það eru alltaf tortillur með til að setja kjötið inn í, lime og salsa sósa:)
Þjónarnir bættu á matinn allt kvöldið og sáu til þess að allir væru með tequila í staupunum, og báru fram allskonar tequila drykki, auðvitað allt frá Camarena fyrirtækinu. Það leið ekki á löngu þar til allir voru farir að dansa og við skemmtum okkur svoooo vel:)

Reyndar kom eitthvað upp á seinna um kvöldið, sem varð til þess að Angela systir Daniels og Javiers vildi ekki gista á tequila býlinu. Þannig við 4 og kærasta Javiers fórum á eitthvað glæsihótel þarna rétt hjá, sem heitir La Monarca, og gistum þar:)

Í dag fór ég heim með systkynunum Daniel, Javier og Angelu, kærustu Javiers og 2 öðrum strákum, því hinir 2 bílarnir ætluðu að vera lengur á býlinu. Við komum við á einhverjum veitingastað til að fá okkur morgunmat, auðvitað eitthvað kjötsull og tortillur, lime og laukur með. Ekki týpískur morgunmatur hjá mér, en damn þetta var gott:)

Nóg búið að ske um helgina, þarf að reyna að hvíla mig í kvöld. Einhverjir ætla í bíó, Daniel og fleiri, en ég veit ekki hvort ég ætli. Ekki veitir af smá svefni eftir langa helgi:) verð í skólanum frá 10-21.30 á morgun, bara með klukkutíma gati klukkan 6....

Ég er amk á lífi og vona að allir hafi það gott:)
LOVE frá México <3

Friday, August 13, 2010

DRAUMUR

jahérna hér.... vid Theresa kynntumst fyrir algjora tilviljun nokkrum strákum sem eru í TEC skólanum med okkur. Vid kynntumst teim tannig ad vid vorum a leidinni i party hjá einum raudhaerdum ástrala, en ég tyndi midanum med heimilisfanginu tannig vid vorum haettar vid, svo lobbudum vid adeins ut i bud og hittum tar nokkrar astralskar stelpur ur skolanum. Taer spurdu hvad vid vaerum ad fara ad gera, og eg sagdi ad vid hefdum aetlad ad fara i partyid hja raudhaerda astralanum, en vaeri ekki med adressuna. Stelpurnar sogdust lika vera ad fara i partyid hja raudhaerda Ástralanum og taer gafu okkur adressuna.

Tegar vid vorum ad fara ad taka taxa tangad, ta baudst vinur Pedros (Pedro er einn af strakunum sem byr med mér í húsi) ad skutla okkur, svo vid keyrdum af stad. Tegar vid nálgudumst hverfid tá var tvílík oryggisgaesla, turftum ad keyra gegnum fullt af hlidum med oryggisvordum, syna skilríki, og verdirnir voru mjog skeptískir ad hleypa okkur inn, tví ég sagdi vid alla verdina: we are going to house number 42! Og tá spurdu verdirnir alltaf ad tví hver byggi tar sem vid vaerum ad fara til, og ég svaradi alltaf: Matt! Teir voru mjog hissa, sogdu ad tad byggi enginn Matt tarna, og ég sagdi ad hann vaeri nyfluttur og aetti líklega bara eftir ad skrá nafnid sitt. Ótrúlegt en satt, tá var okkur hleypt gegnum oll hlidin, og á endanum komum vid ad staersta húsi sem ég hef nokkurntímann séd. Tetta var af teirri staerdargrádu ad madur hefur bara séd svona í bíómyndunum. Vid vorum komnar í allra fínasta hverfi México, og ég á ekki til nógu stór ord til ad lysa tessu....

Vid lobbudum inn í partyid, og tar voru svona 15 manns, lífverdir og sundlaugar, opinn strandbar úti í gardi, og ég veit ekki hvad og hvad. Vid fórum strax ad tala vid fólkid og skemmtum okkur konunglega. Eftir sirka klukkutíma tá áttadi ég mig á tví ad raudhaerdi ástralski Matt var hvergi sjáanlegur og svo tegar ég fór ad tala vid einn strák tarna í partyinu, sagdi hann mér ad hann hefdi búid í Ástralíu seinasta ár, tá fattadi ég ad hann var med semi rautt hár, og ad tetta vaeri hans party!!! Raudhaerdi ástralinn var med sitt party einhversstadar allt annarsstadar, tannig vid vorum bara búnar ad krassa tetta tvílíka heimaparty, komumst gegnum oll oryggishlidin og allt haha =) Audvitad hélt ég ad ástrolsku stelpurnar vaeru ad tala um Matt tegar taer sogdust vera á leidinni í party hjá raudhaerda ástralska gaurnum!

Allavega, vid endudum á ad skemmta okkur tvílíkt vel og kynntumst fólkinu í partyinu. Strákur sem heitir Daniel átti húsid, og fadir hans á oryggiskompany, sem vinnur fyrir ríkid sem nylega myrti Ignacio Nacho, einn staersta mafíuforinga og yfirmann glaepagengja tengdum drug warinu í Mexico. Nacho var skotinn til bana af logreglunni fyrir 2 vikum, eftir ad logreglan hafdi heitid hverjum teim sem gaeti gefid upplysingar um hvar hann vaeri einhverjar milljónir US dollars!!! Utaf tessu var mikil oryggisgaesla kringum hus Daniels, en tad eru víst alltaf lífverdir tarna og mamma hans hefur alltaf haft stóran feitan lífvord med sér hvert sem hún fer =) Tetta var bara of ótrúlegt allt saman. Og enn og aftur- tetta fólk á upphaedir sem madur getur bara ymindad sér!!!!!!

Ad lokum var gestum bodid ad gista, allir fengu sér rúm til ad sofa í, og sídan um morguninn var manni skutlad heim í bílalest, med allskonar glaesikerrum. Tetta var eins og einhver draumur.

Daniel er voda nice strákur, hann skutladi mér svo heim úr skólanum á midvikudag og er alltaf ad bjodast til ad hjálpa mér med hvad sem er, hann aetlar ad fara med mér í immigration brádum, tví ég tarf ad redda student visanu, og tad er vesen OG haettulegt ad taka ein bussinn nidrí midbae og labba svo um til ad leita ad embassyinu! Fínt ad eiga svona vin í skólanum=)

Á midvikudag var mikid ad gera í skólanum, ég fór í minn fyrsta matreidslutíma og laerdi ad elda arroz con leche, med vanillu og jardaberjum, sem er mjog traditional eftirréttur, og svo gerdum vid tostadas med kjukling med eplum og selleríi, tvílíkt delicious. Hlakka til ad prófa tetta aftur vid taekifaeri. Á midvikudag var ég ad laera allt kvoldid og allan daginn, tví ég turfti ad vera med kynningu á Reykjavík fyrir framan allann bekkinn og flytja hana á SPAENSKU!!! tannig ég reyndi ad undirbúa mig eins og ég gat:) Tad gekk vel.

Í gaer, fimmtudag, tá komu 2 strákar sem vid hofdum kynnst í partyinu ad saekja mig, og ég tók Theresu og Soruh med. Vid keyrdum í einhverjum edalvagni tvert í gegnum borgina og endudum heima hjá odrum teirra. Enn og aftur, riiiisastórt hús, tjonustukona, gardyrkjumadur, og allt sem til er. Vid endudum a ad fara i sundlaugina og skemmtum okkur ótrúlega vel. Í dag, fostudag, var ekki skóli, svo Juan spurdi mig hvort ég vildi koma út ad borda med sér, bara fá okkur léttan hádegismat eda eitthvad. Ég hafdi ekkert annad ad gera, svo hann kom og sótti mig, og vid keyrdum í einkagolfklúbb sem hann spilar í. Tviiiiiilíkt og annad eins. Ég aetla ekki ad reyna ad lysa tesssu- eina sem ég get sagt var ad tetta var besti hádegismatur sem ég hef fengid og tvílík upplifun í tokkabót.

Allavega, tad er nóg ad gerast hérna, en skólinn er allur ad byrja og nú er bara ad taka hann fostum tokum, markmidid er ad vera med yfir 8,3 i medaleinkunn eftir fyrstu onnina, tvi ef madur naer yfir 8,3 ta faer madur 10% fleyri leyfdar fjarvistir, til ad ferdast og svona. Madur ma nefninlega bara missa af 2-4 skiptum af hverjum tíma yfir alla onnina, tvílíkt strangt í skólanum.
TEC skólinn er flottasti og dyrasti einkaskólinn í Guadalajara, allir sem eru hérna eru ótrúlega efnadir og tad er stórmerkilegt ad sjá bílaflotann á nemendabílastaedunum á morgnana!! Ein stelpan sem er hérna í skiptinámi líka, hún er frá Swiss, en aettud frá Karabíska hafinu svo hún er svort. Hún var ad segja í Culture tíma í gaer ad fólk hefdi ekki trúad ad hún vaeri nemandi vid skólann, tad er svo mikil mismunun og fordómar. Tad er svo ótrúlega ótrúlega ÓTRÚLEGA stórt bil á milli fátaekra og ríkra hérna!

Í dag, fostudag, tarf ég ad vera dugleg ad laera, á morgun aetlum vid, Juan, Daniel, Rojo og fleiri af strákunum ad fara í Tequila factory sem einn teirra á, og teir eiga 2 hús tarna sem vid getum oll gist í. ástrolsku stelpurnar aetla ad koma líka, tetta verdur mjog gaman. Gott og gaman ad kynnast local fólki, úr skólanum, sem getur synt manni allt sem hér er ad sjá....

en farin ad laera......

Kossar og Knús frá México <3

Sunday, August 8, 2010

Night in Mexico :)

Þetta var góður dagur, ég svaf út og slakaði á, enda hefur ekki verið mikið um svefn seinustu nætur. Búin að vera í heila viku í Guadalajara, borginni sem ég elska <3

Smá summary: á þriðjudag seinasta, þá flutti ég hingað í Calle Tequila, sama kvöld var risaparty í The Conexión house, sem er riiiisastórt hús, sem 12 manns búa saman í, og það eru alltaf fyrirparty og eitthvað að ske þarna á hverju kvöldi. Þau eru líka með sundlaug, og á föstudaginn enduðum við á að fara öll í sundlaugina kl.6 um nóttina eftir djammið:) mjög gaman, en ekki myndi ég vilja búa í þessu húsi:)

á miðvikudaginn var dreift vip armböndum á klúbb sem heitir Chalet, og þetta var fáránlegt djamm! Vopnaleit og allskonar kom mér dáldið á óvart. Svo sá ég 3 veldressaða menn, gelaða með gullskartgripina á hreinu koma inn, og ég sá þá rétta dyraverðinum peninga.... greinilega með byssur á sér og sluppu við vopnaleitina! Sem betur fer sá ég þetta þegar við vorum að yfirgefa staðinn, en það er ansi óhugnaleg tilhugsun að vita af einhverjum byssubófum inni á sama skemmtistað og maður er á.

Á fimmtudaginn fórum við öll saman út að borða, öll í húsinu mínu og 2 öðrum húsum sem sami maður á. Fengum góðan mat, nokkra bjóra bara og kynntumst:)

Á föstudag var dreift armböndum á Welcome party á Cherry Lobby. Það var ótrúlega gaman, þessir skemmtistaðir eru af stærðargráðu sem maður bara getur ekki ímyndað sér, og það var vopnaleitarhlið og svona, svo mér leið smá betur að vita af því að ALLIR þurfa að labba gegnum það. Enduðum í eftirparty í The Conexión house, þar sem við enduðum nokkur saman í sundlauginni, sem var btw ísköld!:)

í gær, laugardag fórum við Theresa á San Juan de Dios markaðinn alræmda! Þvííílíkt stór markaður, mikið af eftirlíkingum og ólöglegum vörum undir borðunum hef ég heyrt. Við vorum ekki lengi, vorum svo lengi að finna markaðinn og vorum bara að rölta um miðbæ Guadalajara, svo kom Sarah og hitti okkur fyrir framan dómkirkjuna. Þessi borg er svo fallegt, húsin og byggingarnar eru fallegar, kirkjurnar og stytturnar. Fórum á fínan veitingastað, El Mexicano, þar sem var live Mariachi tónlist, leirdiskum, veggirnir málaðir í allskonar litum og skúlptúrar og litríkar myndir og skraut á öllum veggjum. Ég keypti mér þennan líka fína kjól á 1300krónur. Ég veit ekki hvernig það atvikaðist, en þegar við vorum að labba um miðbæinn var hrópað á mig og áðu en ég vissi af var ég komin í miðjuna á stórum hóp áhorfenda, með einhverjum trúðum, blöðrum og þrautum! Trúðurinn var með eitthvað uppistand og ég endaði á að vera þarna í allavega hálftíma, stelpurnar tóku nokkrar myndir, sem ég set inn hérna seinna:) Svo fórum ég og Theresa í party hjá nokkrum Mexicönum. Vinkona Theresu, sem er mexicönsk og var skiptinemi í Þýskalandi, hún kom Theresu í samband við vini sína í borginni og þeir buðu okkur í party. Komu og sóttu okkur á fínum bíl og við fórum í e-a geggjaða íbúð. Þar voru nokkrar stelpur, sem ég fór að spjalla við og enduðum við á því að skemmta okkur ólýsanlega vel alla nóttina. Fórum svo saman á klúbb sem heitir Bosse og er mjög Posh staður, eiginlega sá fínasti skilst mér. Þetta var svo ótrúlega gaman. Mexicönsku strákarnir eru svo óóótrúlega kurteisir, þeir spurja hvort þeir megi dansa við mann, opna fyrir mann bílhurðir og láta mann labba á undan sér upp stiga og inn um hurðir, og rétta manni hendina, halda á pokum og dóti fyrir mann og eru fljótir að hjálpa manni ef einhverjir dólgar byrja með vesen. Þetta er eitthvað sem mér finnst ótrúlega áhugavert, hvað þeir eru allir kurteisir við konur. En allavega, við dönsuðum og dönsuðum, aaaaaaallt kvöldið, stoppuðum varla, stelpurnar voru svo skemmtilegar og strákarnir líka þannig þetta endaði sem besta kvöldið so far=)

Í dag ákvað ég að soooooooofa, enda hef ég ekki sofið meira en 4-5 tíma alla vikuna. Of mikið djamm og svo er maður alltaf vaknaður snemma við sólina sem skín inn um gluggann:) Það var brjáluð sól í dag, en ég var bara róleg. Svo um 6 leitið hringdi vinur minn, Trillo og sagði mér að vera tilbúin eftir klukkutíma því hann væri með smá surprice! Hann kom og sóttir mig svo, og við fórum að skoða allskonar styttur, og monuments í borginni. Fórum á risastórt hringtorg þar sem listamenn selja verkin sín allan hringinn, og allir hundaeigendur borgarinnar mæta með hundana. Mikið voru falleg verk þarna, og ódýr! ! Síðan gengum við aðal göngugötuna, sem er í raun bara mjög mjög breið umferðareyja, með fallegum upplýstum gosbrunnum og styttum, og á endanum er riiiisastór stytta, (la nino de patriot), man ekki alveg hvað hún hét en ég mun komast að því. Þetta var geggjað kvöld, keyrðum um ýmis hverfi, gengum um stórborgina og settumst niður og fengum okkur risastórt agua de guyaba, sem er mjólkurvatn með ávaxtabragði og fæst allsstaðar, búið til mismunandi á hverjum stað og Taco con churizo og taco con Ahoblabla, sem var virkilega gott. og hann kenndi mér á alla mexöcönsku réttina. Trillo er frábær strákur, og á þriðjudaginn ætlar hann að bjóða mér með sér og vinum sínum til Tlaquepaque, sem er bær í 40 min akstri héðan. Tlaquepaque er upphafsstaður Mariachi tónlistarinnar, og virkilega fallegur bær segja allir, svo ég hlakka mikið til á þriðjudaginn:)

Næstu helgi langaði okkur Theresu að kaupa rútumiða og fara til Puerto Vallarta, sem er í 3ja tíma fjarlægð og fá smá base-tan fyrir helgina þar á eftir, en þá er riiiiisastór Beach Camping Trip með Conexión nemendafélaginu. Það eru yfir 100manns að fara og þetta verður geggjað. En já, okkur datt í hug að byrja núna næstu helgi á að fara til Puerto Vallarta, ódýrt í rútu og ódýr hostel... en þegar ég var að segja Trillo frá þessu áðan þá sagði hann að Conexion nemendafélagið eigi hús þarna og þau hafi verið að tala um að fara til Puerto Vallarta næstu helgi og einhverjar franskar stelpur , og fyrst við Theresa værum að fara þá myndum við bara slá þessu á fast, fyllum nokkra bíla öll saman og brunum á ströndina:) Og gistum frítt í strandhúsinu:)

Get ekki beðið:)

Jæja, klukkan er orðin 2, og ég þarf að mæta í Erobikk kl.10 í fyrramálið í skólanum. Fríir tímar í líkamsræktarstöðinni í skólanum. Svo er ég í stórri eyðu frá 1-17.30 og ætla að nýta það í að fara í sundlaugina og synda nokkrar ferðir, borða góðan lunch á einhverri veitingasölunni á skólalóðinni, sitja undir ávaxtatré í skugga frá sólinni og læra smá spænsku, og svo fer ég í tíma frá 17.30-21.30 um kvöldið. Tek ekki bussinn þegar ég er búin svona seint, heldur taxa. En þar sem það er Movie Night í Conexion house, þá ætla ég að fara beint í taxanum þangað og hitta alla krakkana, það verður nice=)

já það er greinilega nóg að gerast hérna í México. Ég er svo hamingjusöm að það nær engri átt. Svo þegar ég kom heim í kvöld frá bæjarferðinni með Trillo þá var frönsk stelpa frammi í stofu að ræða við eigandann, og hún var að flytja inn í húsið! Svo kom hún og bankaði á herbergið mitt og var að kynna sig og svona, hún heitir Aurelia (hvernig sem það er nú skrifað á frönsku) og er virkilega yndisleg sýnist mér. Talar litla ensku, en reiprennandi spænsku og frönsku náttúrulega, og stakk upp á því að við myndum hafa smá welcome-kvöld á morgun, fá okkur vínglas og kynnast. Ég bauð henni bara að koma í Movie nightið hjá Conexion fólkinu og við gætum rölt saman frekar á þriðjudag eða við tækifæri og fengið okkur taco og hvítvínsglas og kynnst aðeins:)
Málið er að það er núna verið að vinna í herberginu mínu. Þannig ég er í herbergi á jarðhæðinni núna. En ég flyt í nýja herbergið vonandi í þessari viku bara, það er uppi á 3.hæð, og ég þarf að labba upp brunastiga til að komast inn í það, en það er forstofa og hann ætlar kannski að setja sófa þar og ísskáp og svona, svo ég þurfi ekki alltaf að labba niður 3 hæðir til að fara inn í eldhús. Úr herberginu mínu á 3.hæðinni er hurð sem liggur upp á þakið! Mikið hlakka ég til að fá það herbergi- fara í Wal Mart og kaupa mér góðan sólstól, plastborð, dúk og dýnu... svo ég geti bara setið í sólinni uppi á þaki að læra á daginn, hlustað á tónlist og fengið smá tan:)

Kveðjur frá sunny México...<3
xoxo

Friday, August 6, 2010

Tequila....


Æji ég hef það svo gott:)

eitt sem ég verð að nefna- Það er ótrúlegt að sjá hvernig Mexicanar keyra, það eru sjaldan skilgreindar akgreinar og það er sveigt fram og til baka. Enginn í beltum, og allir pallbílarnir eru með pallinn fullan af fólki, ungabörnum jafnvel. Og á móturhjólum eru heilu fjölskyldurnar og kornabörnin hanga bara undir handleggnum á fólki. Sá líka ca 10 ára strák með kornabarn undir hendinni á reiðhjóli.
Í gær vorum ég og Theresa í mollinu sem er hérna við hliðina á, La Gran Plaza nánast allan daginn. Það eru útsölur og allir kjólar og bolir voru á 900-1200kr. Gerðum góð kaup, ég keypti:

* Gallastuttbuxur sem ég elska, geggjaðar úr Mango
* 7 boli/síða kjólaboli
* 1 kjól* 2 eyrnalokkar og 5 hárbönd
* 2 bandeau toppa
* risastóran peach trefil

allt þetta kostaði 15þúsund! Núna er ég vel dressuð fyrir skólann, gaman að gera góð kaup:) Búðirnar eru snarvangefnar, þær eru svo flottar!

Í gærkvöldi fórum við öll sem búum hérna og líka allir íbúarnir í 2 öðrum húsum saman út að borða. 1 strákurinn sem býr hérna með mér á þessi 3 hús, og það eru reglulega haldin svona kvöld, sem er mjög sniðugt. Við fengum okkur 1 bjór og borðuðum nautakjöts torta, sem er dáldið traditional fyrir þessa borg. Kjöftuðum mikið og öllum fannst voða sniðugt að læra að segja Eyjafjallajökull:) Það var mikið að gerast í borginni í gær, en við ákváðum að fara bara heim kl.1 því við þurftum að vakna snemma í dag til að fara í smá ferðalag. Fyrir utan að við djömmuðum þriðjudag og miðvikudag og í kvöld er Welcome party á einum flottasta klúbbnum, Cherry Lobby og allt brjálað:) hehh....

Í morgun vöknuðum við Sarah, fengum okkur morgunmat og tókum bussinn í skólann. Þetta er svo skemmtilegt, það tekur alveg 30 min að fara í skólann, en bussinn er FULLUR af fólki, og annar hver maður er úr skiptinemahópnum svo það er fínt. Þessar 30 min líða líka mjög hratt, það er svo margt og mikið að gerast úti á götunum, troðfullir ávaxtabílar að fara með ferska ávexti í búðirnar, blómabílar með framandi blómum, fólk, börn, sölumenn og allt bara iðar!! Strætóarnir koma á sirka 5 mín fresti, þetta er ekkert flókið, ef maður þarf að komast eitthvað, þá fer maður út á aðalgötuna sem liggur semi hringinn í kringum alla borgina, stendur einhversstaðar öðru hvoru megin við götuna, eftir því í hvaða átt maður er að fara, og á 3-5 mínútum birtast strætóar sem maður bara veifar og þeira stoppa eða stoppa ekki, allt eftir því hvort þeir séu á eftir áætlun eða ekki. Því bílstjórarnir fá víst sekt fyrir að vera of seinir, og því hika þeir ekki við að keyra framhjá jafnvel stórum hóp af veifandi fólki hehe:) En það kemur alltaf annar strax á eftir, stanslaust allan daginn, því það er svo mikið af fólki sem þarf að ferja, og samt alltaf allt troðfullt! Maður svitnar bara í hitanum og loftleysinu við að reyna að halda sér, því bílstjórarnir keyra eins og fávitar, gefa í og svo NEGLA ÞEIR NIÐUR til að hleypa fólki inn sem veifar á götunni. Mestu mistök mín voru að taka með mér kaffibolla í strætóinn í morgun, ég var bara með lítinn expresso í risastóru rauðu plastglasi, en engu að síður átti ég í stökustu vandræðum með að passa að skvetta ekki á fólkið í kringum mig:P

Þegar við komum í skólann þá biðu okkar rútur. Það er sér rútustöð inni á skólalóðinni, með sér rútum frá skólanum og bílstjórum. Voða fancy allt. Við fórum í bæinn Tequila sem er í kannski 1.5 klst akstri frá Guadalajara. Við skoðuðum Tequila verksmiðju og fengum að smakka mismunandi og lærðum um ferlið sem er ótrúlegt. Sáum mann vera að taka Agave plöntuna og vinna hana með gamaldags hníf, en tequilað er unnið úr þessari plöntu. Hún er alveg eins og risastór ananas, nema blöðin eru blá og hörð. Síðan fórum við öll saman í pikknikk undir ávaxtatrjám, með risavöxnum Papaya, mangóum, lime og appelsínum. Á heimleiðinni var komið við í litlum sveitabæ og þar keypti ég nokkra minjagripi, aðallega handa mömmu;) No worries, þetta er ekki eitthvað drasl, þú munt elska þessar gjafir;)

Þegar við komum aftur í skólann, tókum við Sarah og 2 þýskir strákar saman bussinn heim. Þýsku strákarnir búa í húsi ekkert það langt frá og eru með sundlaug sem þeir buðu okkur að nota hvenær sem er- það verður gott að chilla úti í garði við sundlaugarbakkann hjá þeim:) svo komum við Sarah aðeins við í mollinu því hún vildi kaupa alveg eins kjól og ég hafði keypt mér í gær og svo löbbuðum við heim:)
Það var gott að komast í sturtu eftir langan dag- enn meira hressandi að vera lokuð inni á baðinu með eldhressan kakkalakka sem skaust um. Ótrúlegt en satt þá tókst mér að taka þetta risakvikindi og henda því í klósettið!! Fengum okkur svo léttan mat hérna heima, jógúrt, granóla og ferkst mangó og erum að fara að gera okkur til fyrir kvöldið- risastórt Welcome party á einhverjum geggjuðum klúbb sem heitir Cherry Lobby. Allir skiptinemarnir og mexicanarnir verða þarna og fuuuullt af liði. Stærðin á þessum klúbbum er eitthvað sem maður getur ekki ímyndað sér. Ætla að reyna að vera dugleg að taka myndir í kvöld:)

Vona að allir hafi það rosalega gott heima á klakanum:)

ástarkveðjur frá Sunny México <3

Wednesday, August 4, 2010

Nýtt húsnæði!

Í gær, þriðjudag, vaknaði ég hjá senjorunni, fór í sturtu og labbaði í skólann. Það er mjög skrítið að hafa ekki bíl, það eru mjög langar vegalengdir hérna í stórborginni þannig ég get reiknað með því að labba mikið næstu mánuði :O

Strákarnir hérna eru alveg trylltir, gapa og stara, flauta og kalla og best finnst mér þegar þeir gera mjög kjánalegt svona kossa smootch hljóð! Þið vitið hvað ég er að tala um, þetta er alltaf svona þegar útlenskar stelpur labba um í Mexico og svipuðum löndum! En ég er með frábæra leið til að ignora þetta- hlusta á mexicanska tónlist í útvarpinu í símanum mínum, mér finnst alveg yndislegt að rölta um á ljósum gangstéttunum, framhjá appelsínutrjám og fiðrildum, hlusta á local útvarpsstöð í steikjandi hita og brjálaðri sól:)
Ég er búin að fjarlægja alla skartgripi og þegar ég er að labba reyni ég að vera alltaf í síðbuxum og rifnu hettupeysunni minni, helst með hárið oní peysunni og stór sólgleraugu. Tala nú ekki um nú fyrst ég er flutt í hús fjær skólanum, frekar miðsvæðis og þarf að taka bussinn í skólann í 30 min. En skólinn er mjög fínn svo það verður nauðsynlegt fyrir mig seinna að fá stóran skáp í skólanum, fyrir íþróttadótið mitt, auka skó og svona, svo ég þurfi ekki að dröslast með það á hverjum morgni á leið í skólann.

í gær fórum skólinn með okkur í bæjarferð að skoða miðbæinn, óperuhúsið, dómkirkjuna og ýmis fræg monument. Betlararnir voru á torgunum og lítil börn snigluðust um allt í von um að gera rænt eins og einu veski. Sólin brann og hitinn var óbærilegur! Ferðin var búin um 6 um daginn, svo ég labbaði til senjorunnar, fór í sturtu, pakkaði saman dótinu mínu og pantaði taxa.

Tók taxann niður miðsvæðis, nálægt La Gran Plaza mollinu í götu sem heitir Tequila:) Calle Tequila:) Þetta er stórt hús, fallegt að innan, auðvitað með smá mexico brag- þeas smá göt á veggjunum, brotnar flísar á baðherberginu og svona, en þetta er virkilega flott hús miðað við miðbæ Mexico. Hjá senjournni var allt glænýtt og stylish, bara eins og á fínu hóteli, en það var ekkert mexicanskt við húsið hennar nema litirnir og lögunin á húsinu. Casa Tequila er alvöru mexicanskt. Mætti hingað um 8 í gærkvöldi, henti töskunum inn, talaði við eigandann, lærði á þvottavélina, og svo rölti ég yfir til Theresu þýsku sem býr í þarnæstu götu og við fórum saman á BurgerKing sem er rétt hjá og út í supermarkað að kaupa ís og smá bjór fyrir kvöldið. Í húsinu búa held ég 6 strákar og svo Sarah franska og ég. Svo fórum við þrjár, ég, Sarah og Theresa í taxa í welcome party, og það reyndist verða insane!!!

Partyið var alvöru, þetta er hús sem nokkrir mexicanskir nemendur við TEC búa í, þau eru í forsvari fyrir stúdentasamtök sem heita Conexion og aðstoða skiptinema við að finna hús og ýmislegt. Þau eru þekkt fyrir brjáluð party, og þetta staðfesti það alveg! Það var endalaust af margaritum í boði, jelloshots, tequila, svo var DJ úti í garðinum, ljósashow og allir mexicanarnir dansandi (dáldið öðruvísi en maður er vanur) og svo voru menn í búningum úti í garðinum að dansa og auglýsa skemmtistaði og party sem verður haldið í kvöld og næstu daga. Takið eftir að í gær var þriðjudagur. Það skiptir engu máli hvaða dagur er, það eru party hérna öll kvöld. Ég tek þetta í hófi, en það er nauðsynlegt að láta sjá sig fyrstu dagana til þess að kynnast fólkinu. Við erum eitthvað um 200 skiptinemar, allt ungt fólk og fyrst í partyinu í gær var maður virkilega að spjalla við fólkið. Allt í einu kom brjáluð þruma, himinninn lýstist upp og allir fögnuðu brjálað hehehe, en svo kom líka strax á eftir ÚRHELLI þannig allir öskruðu og reyndu að komast inn úr garðinum, nema nokkrir sem dönsuðu í grasinu með tequila flöskurnar:) á nokkrum mínútum sást ekki lengur í grasið í garðinum, vatnið varð alveg 10cm djúpt á no time! Partyið varð insane á þessum tímapunkti svo við stelpurnar ákváðum að brjáðum væri tími til að yfirgefa svæðið, enda bara fyrsta partyið og svona.

En þetta var virkilega gaman og ég hlakka til að fara í skólann í dag og hitta fólkið aftur frá því í gær:)

Í Casa Tequila, þar sem ég bý, er mjög stutt í alla þjónustu, ég er mjög sátt. Einnig eru mikið af stúdentum í götunum í kring og mikið af fólki. Mun betra að rölta hér um heldur en í fínu úthverfunum þar sem fínu göturnar eru auðar eins og hjá senjorunni. Ég fíla þetta mun betur, geta hoppað út í supermarkað á horninu, veitingastaði, mollið, starbucks, banka og þannig.

Jæja, þarf að mæta í skólann um 1, og ætla fyrst að fara út í búð og kaupa nauðsynjavörur og þvottaefni, því ég er ekki með neinn mat hérna og þarf að þvo nokkrar vélar í dag. Páulina mætti í skólann í morgun, og hún býr á campus á skólalóðinni, svo ég hlakka til að hitta á hana, og svo jafnvel kíkja í mollið á leiðinni heim:)

Vona að allt sé gott á klakanum, verið endilega duglegri við að senda mér fréttir:) Chiao

Monday, August 2, 2010

húsnæðisvesen

smá summary af México so far:

litrík fiðrildi á stærð við lófa, kólibrífuglar, eðlur, tignarlegir fálkar, asnar, múlasnar, kókoshnetur, mangótré, límónutré, bananatré, götuhundar, kúrekahattar, varðhundar, kaktusar, hermenn, litrík blóm og runnar, framandi ávextir, litrík hús, pálmatré, ferskur kókoshnetusafi, tacos, chili, sól og hiti, ískaldur bjór, WV bjöllur, mótorhjól og sólbruni!

Þessir dagar með Páu og fjölskyldu í "litlu" bæjunum kringum Lake Chapala voru yndislegir. Þau hugsuðu svo vel um mig og létu mig prófa allt sem ég mögulega gat prófað.

Núna er önnur nóttin mín hjá einfættu senjorunni, senjora Solidad. Hún er yndisleg, og líka strákarnir sem eru hérna. Sérstaklega Ricardo sem er í herberginu við hliðina, hann er mjög hjálpsamur og ljúfur. Fór í skólann í fyrsta skipti í morgun, þetta er þvílíkt flott, pálmatré, sundlaugar og sólhlífar. Starbucks, bankar, matsölustaðir og fleira inni á skólalóðinni. Það eru fullt af íþróttaliðum í skólanum og fullt af fólki að hlaupa, æfa, synda eða gera eitthvað út um allt. Þetta er fullkomið! Hlakka til að byrja námið á fullu. Það er skyldumæting í alla tíma, og engar fjarvistir leyfðar (nema 2-4 í hverjum kúrs yfir alla önnina), ekki einu sinni vegna veikinda þó það sé læknisvottorð til staðar! Líka ef maður er 1 mín of seinn, þá fær maður fjarvist. Svo eru nemendur teknir random í fíkniefnapróf. Þetta er mjög góður skóli og mér lýst vel á þetta. Verst með mætinguna, strætóarnir hérna stoppa eða stoppa ekki, ég tók vel eftir því í dag. Það eru engar stoppistöðvar, þú bara ferð á aðalgöturnar og veifar og vonast til að hann stoppi. En þeir koma á nokkurra mínútna fresti. Svo keyra þeir eins og brjálæðingar með opnar hurðir og allir
standandi og kastast til og frá, og allir löðursveittir af átökunum og í hitanum og loftleysinu.

Eftir kynninguna í skólanum í dag fór ég með Theresu frá Þýskalandi í Bus inn í miðborgina í herbergið hennar. Það er mjög miðsvæðis og þar hitti ég manninn sem á húsið sem hún er í, og hann sagðist eiga 2 herbergi laus í nálægu húsi. Fór og kíkti á það, og þetta er fallegt hús og stórt herbergi er á 4.000 pesos, og svo er lítið herbergi í bakgarðinum á 2.500, maður þarf að labba gegnum húsið og upp brunastiga til að komast inn í það herbergi. Gallinn við þetta hús er að í öllu húsinu er bara 1 baðherbergi, og alls eru 1 stelpa og 5 strákar sem búa þarna. Stelpan er frá Frakklandi, Sara og er mjög fín. Hún er með besta herbergið í húsinu, á 3.500 pesos og með riiisastórar svalir. Þetta hús er í miðsvæðis, göngufæri í veitingastaði, búðir, verlsanir og alla þjónustu, annað en í úthverfunum, þar sem maður þarf að labba aleinn um auðar götur lengi lengi án þess að sjá neitt annað en risastór hús og einstaka öryggisvörð að vakta hlið. Ég veit ekki hvað ég á að gera, hvort ég eigi að taka þetta og flytja inn á morgun og vera þarna í 1 mánuð þar til ég finn eitthvað annað, eða bara bíða og borga senjorunni 2.000 pesos per nótt fyrir þetta fína herbergi sem ég er í núna hliðina á skólanum (sem er í útjaðri borgarinnar) en sá sem er búinn að leigja þetta herbergi kemur á laugardaginn, svo ég þarf að fara héðan á föstudag í seinasta lagi. Flestir eru komnir með eitthvað, því það eru alls e-ð um 200 skiptinemar hérna að byrja núna, og t.d. þau sem komu frá sama skóla í Þýskalandi voru búin að para sig saman áður en þau komu hingað og eru kannski 5 saman að leigja heilt hús með 5 herbergjum. Það er erfitt að vera ein og leita að herbergi!

svo það er eiginlega tvennt í stöðunni- vera hjá senjorunni út vikuna og krossa putta að ég finni eitthvað fyrir vikulok... eða taka litla bakgarðsherbergið með sameiginlega baðherberginu og þurfa að labba niður brunastiga og inn í húsið til að þurfa að pissa.

Æji, ég tala við krakkana í skólanum á morgun, kannski er einhver hópur með stórt hús með auka herbergi. Þetta kemur í ljós.

Eyddi allavega deginum í miðbænum með Theresu og Söru, löbbuðum heillengi, litum aðeins inn í mollið og fórum í WallMart að kaupa kodda, sjampó, handklæði, sólarvörn, bómull og ýmsar nauðsynjavörur. Þetta var viiirkilega heitur dagur í dag, við vorum allar löðrandi í svita og búnar á því. Ég tók svo taxa alla leið til baka (skólinn og húsið sem ég er í er 30 min frá miðbænum) og borgaði bara þúsundkall fyrir það. Kom inn, spjallaði við senjoruna, fór í langþráða sturtu eftir langan dag, setti á mig bodylotion og kældi sólbrunann á öxlunum eftir daginn og sit núna á rúminu með fersk nýtýnd mango og ávexti að læra undir TOEFL prófið sem ég fer í á morgun:) Svo fer allur hópurinn í skoðunarferð í miðbæinn, og svo þarf ég að ákveða hvort ég taki töskurnar mínar og fari í litla herbergið í húsinu hjá Söru, nálægt Theresu og hinum nemendunum, eða hvort ég gisti hér 3. nóttina og vonist til að finna húsnæði fyrir vikulok. Þetta er stressandi! Þessi óvissa fer með mig, ég virkilega vona að ég finni eitthvað út þegar ég tala við krakkana á morgun, og líka strákarnir í stúdentasamtökunum eru mjög viljugir til að hjálpa, þeir eru búnir að leigja út öll húsnæði á þeirra vegum, en ætla að hjálpa mér. Get líka fengið að gista hjá þeim ef ég er vandræðum þegar ég þarf að fara héðan á föstudaginn ef ég verð ekki komin með annað hús.

jæja, tuðblogg... sorry, þetta var mest fyrir m&p til að sjá hvað er í gangi:)

Sunday, August 1, 2010

Guadalajara- heimili mitt út árið!





Er mætt til Guadalajara!

Í gær lokuðu foreldra Páu búðinni sinni og við eyddum deginum í roadtrip til nágrannaþorpa. Margt og mikið að sjá og skoða. Enduðum daginn á góðum veitingastað en þá byrjaði að hellirigna, ég hef aldrei aldrei séð jafn mikla rigningu (tók það upp á video, því vatnið fossaði niður með svo miklum krafti að það skvettist langt upp í loftið aftur). Það varð hálfgert flóð þannig við gátum ekki keyrt strax til baka, fyrir utan að það fylgja alltaf eldingar og bleyta á veginum+eldingar=stórslys!


Í dag fékk ég nopales (kaktus) quesadilla í morgunmat sem var mjög áhugavert að smakka. Þeir vaxa út um allt villtir og eru seldir í öllum búðum og allskonar afurðir af þeim. Síðan lögðum við í hann til Guadalajara. Planið var að ég myndi hitta aðra skiptinema á hosteli, en þar sem hostelið er langt í burtu ákváðu flestir krakkarnir að redda sér bara fyrstu nóttina og hittast á morgun í skólanum og finna helst íbúðir strax á morgun. Við stoppuðum í La Gran Plaza (risastórt moll í borginni) til að komast á internet á Starbucks og hringdum svo í e-a konu sem er að leigja út herbergi hliðina á skólanum í einu fínasta hverfinu í borginni, svo ég gæti byrjað að vera þar 1-2 nætur þar til við krakkarnir finnum okkur íbúð.


Þegar við komum á staðinn þurftum við að keyra gegnum öryggishlið með vörðum sem skrá niður allar ferðir. Þetta er fínasta hverfi. Hjá konunni búa 6 strákar sem eru í skólanum mínum. Ég fékk stórt herbergi með fínu baðherbergi. Eftir að hafa kvatt Páu og fjölskyldu bauð gamla konan mér að koma með sér í messu. Konan er með einn fót og heitir Senora Solidad. Það var mjög sérstakt að fara í messu kl.7 um kvöld hér í Mexico, troðfullt af fólki, og allt voða alvarlegt. Ég söng hástöfum með sálmunum (fengum bækling) og borðaði oblátur og kraup og bað og gerði allt eins og Senjoran gerði:) Hún söng manna hæst, og verulega falskt:) Ég þurfti að fara í síðbuxum, og þær einu sem ég er með eru Nike íþróttabuxur, en á föstudaginn elduðum ég og Páu Hjónabandssælu fyrir foreldra hennar, og auðvitað tókst mér að brjóta egg á hnénu á mér og sulla yfir mig alla! En ég setti bara fléttu í hárið á mér, fór í eggjuðu buxurnar, þreif það mesta, fór í hvíta skyrtu yfir og stóð mig ágætlega við að aðstoða einfættu senjoruna:)
Eftir messuna áttaði ég mig á því að gamla einfætta konan er algjör töffari. Hún tók mig á rúntinn í Guadalajara, sýndi mér hvaða hverfi ég ætti að varast og hvað væru góð hverfi, keyrði mig að stærsta mollinu (sem er sirka eins og 10 Kringlur) og bauð mér upp á ís:) Síðan fórum við í súpermarkað hérna nálægt svo ég gæti keypt sjampó og annað nauðsynlegt. Við ræddum um allt milli himins og jarðar, stráka, áfengi og brjóstastækkanir. Gamla einfætta átti frumvkæðið að því samt haha! Hún talar mjög litla ensku, en við héldum alveg samræðum á spænsku/ensku. Mikið er hún yndisleg, og líka strákarnir sem búa hérna.

Núna er ég bara uppi í herberginu mínu að undirbúa svefn, með einn kaldan Pacifico á kantinum, loftkælingu og hamingjusöm með lífið og tilveruna:) Hlakka til að vakna kl.8 í fyrramálið og mæta í skólann að hitta alla krakkana, og fara svo eftir skóla að leita að húsnæði! Ein frönsk stelpa fann hún sem hún segir vera fullkomið, 2ja herbergja á 43þúsund á mánuði per manneskju, og hana að vantar sambýling svo ég ætla að kíkja á húsnæðið með henni á morgun. Þetta er dýrasta íbúðin sem ég hef séð (allt svo rosalega ódýrt hérna) en hún er í Providencia sem er hverfið sem mig langaði mest til að búa í í upphafi! Flottasta hverfið! Sé til á morgun:)
Ég er ekki lengur með íslenska númerið mitt, það þýðir ekki að hringja né senda sms í það.

Ég er komin með Mexicoskt númer: (+52) 333 13 99 1 77...

Hey já, í dag keyrðum við götuna þar sem risastór fíkniefnabarón var myrtur á föstudaginn. Ignacio "Nacho", eitthvað þannig! Þetta kom m.a.s. í fréttunum á mbl.is. Einn stærsti glæponinn í Mexico, og löggan myrti hann í áhlaupi á föstudag, í götu hérna rétt hjá skólanum. Mjög skrítið að keyra þessa götu, bara villur og marmarahús og runnar klipptir í allskonar fígúrur.
vá ég er búin að sjá svo margt og prufa svo margt, og er mjög samviskusöm að punkta allt niður í Mexican pink bókina frá Snædísi minni! (dökkbleikur litur er kallaður Mexican pink hérna!) ég segi frá öllu næst:) Já og flugurnar hérna ELSKA mig! Sú sem beit mig á miðja vinstri rasskinnina hefur heldur betur komist í feitt!!! ég er öll bitin, og engin sprey virka!

Kveðjur frá México!

Friday, July 30, 2010

!ESTOY EN MÉXICO!

Ég er loksins komin á leiðarenda:)

Flugvélin frá Phoenix til Guadalajara var pínulítil 10 raða rella. Hún tók nokkrar dýfur og fólk hrópaði upp yfir sig og mann kitlaði í magann. Svo tilkynnti flugstjórinn að við værum að fljúga í gegnum thunderstorm. Þvílíkar eldglæringar, ég á ekki til nógu stór orð til að lýsa þessu! Himinn logaði og litirnir og birtan var stórfengleg! ég hef séð þrumur... en þetta.... vá!

Við hlið mér sat risastór maður, Stuart Browne, mjög almennilegur ameríkani sem hefur búið í Guadalajara í nokkur ár. Hann gaf mér emailið sitt og bauðst til að koma mér í samband við son sinn sem er í hinum háskólanum í borginni og 17 ára dóttur sína og sagði að þau myndu geta sýnt mér borgina.

Þegar við lentum í Mexico var ekkert vandamál, sem betur fer voru töskurnar mínar með í vélinni, þær s.s. höfðu fundist! Páulina og fjölskylda tóku vel á móti mér og við tók 3ja tíma akstur í kolniðamyrkri til 3 um nóttina. Vegirnir voru vægast sagt hræðilegir, það sprakk á dekkinu hjá okkur, því það er rigningartímabil núna og rignir þvílíkt á nótt unni og vegirnir eru ekki betur gerðir en það að þeir grotna bara og eru hálf ófærir.

Á endanum keyrðum við upp fallega hlíð, með beljum og hestum við vegina. Keyrðum inn um lokað hlið og upp að hverfinu þeirra. Húsið er ofboðslega fallegt, útsýni yfir alla borgina, Lake Chapalla sem er risastórt vatn þarna, og fjöllin og allt í kring. Þetta útsýni er alveg to die for!
Við drifum okkur að sofa, enda þurftu foreldrar hennar að vakna kl.6.30 og klukkan orðin 3.

Fyrsti dagurinn í Mexico var bjartur og sólríkur. Við Páw sváfum til 11 og fórum þá í sturtu og tókum okkur til:) Ég keyrði Páw niður hlíðarnar og inn í borgina! Aksturslagið er klikkað hjá Mexikönum, þeir búa meira og minna til sínar eigin reglur og sveigja fram og til baka þvert yfir göturnar, akgreinarnar eru ekki afmarkaðar og skiltin eru óskiljanleg eða ekki til staðar. Engar biðskyldur og maður þarf bara að láta vaða!
Þetta gekk samt vel hjá mér, ég byrjaði að keyra súper varlega, en áttaði mig fljótt á að ég þyrfti að vera aðeins meira aggressive, og það gekk vel:) í miðbænum voru þröngar götur og mikið mannlíf, skraut yfir öllum götum, þvílíkt litrík hús, markaðir, sölufólk og nóg að gerast! Við löbbuðum heillengi um, fengum okkur að borða mexicanskan mat á matsölustað þar sem öll fjölskyldan hjálpaðist að við að elda og afgreiða. Maturinn var mjög góður, ég var smá hrædd um að ég myndi verða veik, en það er munur á að fara varlega og vera paranoyed. Ég er mjög dugleg að þvo mér um hendurnar Pabbi, og er með sprittið í veskinu! Það kom mér á óvart hvað mexicanar nota mikið hendurnar, moka baunamaukinu og sósunum upp á tortillas með puttunum og skófla þessu í sig. Á matsölustaðnum leyfði konan mér að smakka eitthvað, tók bara sleifina, setti smá lasagna á hana og rétti mér... ég hafði ekki hugmynd um hvað ég ætti að gera og Páw sagði bara: take it with your fingers, þannig ég tók bara lasagna með puttunum af sleifinni sem fór svo beint ofan í matinn aftur! Ég ég nokkuð viss um ég eigi eftir að verða veik á e-m tímapunkti, en ég borða bara það sama og Páw og fjölskylda hennar gerir og fer varlega þess á milli.

Við fórum í Supermarket sem var álíka stór og Kringlan. Ávaxtadeildin vakti mesta athygli mína, mig langaði að smakka allt! Endaði á að kaupa 7 mismunandi ávexti sem Páw sagði að ég yrði að prófa og ég hef aldrei séð eða heyrt um áður!

Það er ótrúlega fallegt og skemmtilegt hérna! Það eru endalausir hlutir að sjá og gerast allan daginn! Ég er í góðu yfirlæti, háma í mig framandi ávexti, kryddaðan mat sem lætur mig tárast, allskonar safa, og ég ætla að elda og smakka kaktus í kvöld, sem heitir Nopal og vex villtur út um allt, m.a.s. í bakgarðinum hjá þeim. Litirnir á húsunum, skrautið sem hangir milli allra ljósastaura þvert yfir göturnar, fólkið og dýrin eru yndisleg. Það er ekkert óeðlilegt við að sjá gamlan Mexicana á hestbaki með kúrekahatt í rifnum gallabuxum og skítugri skyrtu fara þvert yfir þjóðveginn í borginni með 2 stóra mjólkurbrúsa bundna við hnakkinn. Pallbílar með fulla palla af fólki á leið í vinnu, vespur og mótorhjól með kannski heillri fjölskyldu á, kornabörn jafnvel og enginn með hjálm. Varðhundar eru út um allt, hænur og asnar.

í morgun vöknuðum við öll kl.6.30 og keyrðum frá Sahuayo, sem þau búa, yfir til Ocotlán, þar sem þau vinna. Fórum í morgunverðarbuffé á hóteli á leiðinni við Lake Chapalla og maturinn var svo sterkur að ég táraðist í fyrstu:) haha... sáum svo risastórt mangótré með þroskuðum mangóum, og ég týndi nokkur lime af límónutré. Núna erum við í vinnunni hjá foreldrum Páw þar sem ég komst í internet. Ætlum að fara að rölta út bráðum og skoða Ocotlán:)

Ég verð að viðurkenna að ég er dáldið öðruvísi en flestir hérna, ég hef ekki séð neinn ljóshærðann. M.a.s. í gær þegar við keyrðum í miðbæ Sahuayo þá vorum við að labba á torgi og það var lúðrasveit að spila, og einn leggur frá sér trompetið til þess að smella af mér mynd! Ég vissi ekki alveg hvernig ég átti að láta, en setti bara hárið í snúð, setti upp sólgleraugu og reyndi að láta lítið á mér bera. En þetta er mjög áhugavert. Og gamlar indjánakellingar brostu til mín tannlausu brosi og vinkuðu og störðu. Ég ákvað að fara út í morgun í síðbuxum og hettupeysu, fínt svona til að byrja með, þrátt fyrir hitann og sterka sólina.

Vona að þið hafið það gott, kveðjur frá Ocotlán:)