smá summary af México so far:
litrík fiðrildi á stærð við lófa, kólibrífuglar, eðlur, tignarlegir fálkar, asnar, múlasnar, kókoshnetur, mangótré, límónutré, bananatré, götuhundar, kúrekahattar, varðhundar, kaktusar, hermenn, litrík blóm og runnar, framandi ávextir, litrík hús, pálmatré, ferskur kókoshnetusafi, tacos, chili, sól og hiti, ískaldur bjór, WV bjöllur, mótorhjól og sólbruni!
Þessir dagar með Páu og fjölskyldu í "litlu" bæjunum kringum Lake Chapala voru yndislegir. Þau hugsuðu svo vel um mig og létu mig prófa allt sem ég mögulega gat prófað.
Núna er önnur nóttin mín hjá einfættu senjorunni, senjora Solidad. Hún er yndisleg, og líka strákarnir sem eru hérna. Sérstaklega Ricardo sem er í herberginu við hliðina, hann er mjög hjálpsamur og ljúfur. Fór í skólann í fyrsta skipti í morgun, þetta er þvílíkt flott, pálmatré, sundlaugar og sólhlífar. Starbucks, bankar, matsölustaðir og fleira inni á skólalóðinni. Það eru fullt af íþróttaliðum í skólanum og fullt af fólki að hlaupa, æfa, synda eða gera eitthvað út um allt. Þetta er fullkomið! Hlakka til að byrja námið á fullu. Það er skyldumæting í alla tíma, og engar fjarvistir leyfðar (nema 2-4 í hverjum kúrs yfir alla önnina), ekki einu sinni vegna veikinda þó það sé læknisvottorð til staðar! Líka ef maður er 1 mín of seinn, þá fær maður fjarvist. Svo eru nemendur teknir random í fíkniefnapróf. Þetta er mjög góður skóli og mér lýst vel á þetta. Verst með mætinguna, strætóarnir hérna stoppa eða stoppa ekki, ég tók vel eftir því í dag. Það eru engar stoppistöðvar, þú bara ferð á aðalgöturnar og veifar og vonast til að hann stoppi. En þeir koma á nokkurra mínútna fresti. Svo keyra þeir eins og brjálæðingar með opnar hurðir og allir
standandi og kastast til og frá, og allir löðursveittir af átökunum og í hitanum og loftleysinu.
Eftir kynninguna í skólanum í dag fór ég með Theresu frá Þýskalandi í Bus inn í miðborgina í herbergið hennar. Það er mjög miðsvæðis og þar hitti ég manninn sem á húsið sem hún er í, og hann sagðist eiga 2 herbergi laus í nálægu húsi. Fór og kíkti á það, og þetta er fallegt hús og stórt herbergi er á 4.000 pesos, og svo er lítið herbergi í bakgarðinum á 2.500, maður þarf að labba gegnum húsið og upp brunastiga til að komast inn í það herbergi. Gallinn við þetta hús er að í öllu húsinu er bara 1 baðherbergi, og alls eru 1 stelpa og 5 strákar sem búa þarna. Stelpan er frá Frakklandi, Sara og er mjög fín. Hún er með besta herbergið í húsinu, á 3.500 pesos og með riiisastórar svalir. Þetta hús er í miðsvæðis, göngufæri í veitingastaði, búðir, verlsanir og alla þjónustu, annað en í úthverfunum, þar sem maður þarf að labba aleinn um auðar götur lengi lengi án þess að sjá neitt annað en risastór hús og einstaka öryggisvörð að vakta hlið. Ég veit ekki hvað ég á að gera, hvort ég eigi að taka þetta og flytja inn á morgun og vera þarna í 1 mánuð þar til ég finn eitthvað annað, eða bara bíða og borga senjorunni 2.000 pesos per nótt fyrir þetta fína herbergi sem ég er í núna hliðina á skólanum (sem er í útjaðri borgarinnar) en sá sem er búinn að leigja þetta herbergi kemur á laugardaginn, svo ég þarf að fara héðan á föstudag í seinasta lagi. Flestir eru komnir með eitthvað, því það eru alls e-ð um 200 skiptinemar hérna að byrja núna, og t.d. þau sem komu frá sama skóla í Þýskalandi voru búin að para sig saman áður en þau komu hingað og eru kannski 5 saman að leigja heilt hús með 5 herbergjum. Það er erfitt að vera ein og leita að herbergi!
svo það er eiginlega tvennt í stöðunni- vera hjá senjorunni út vikuna og krossa putta að ég finni eitthvað fyrir vikulok... eða taka litla bakgarðsherbergið með sameiginlega baðherberginu og þurfa að labba niður brunastiga og inn í húsið til að þurfa að pissa.
Æji, ég tala við krakkana í skólanum á morgun, kannski er einhver hópur með stórt hús með auka herbergi. Þetta kemur í ljós.
Eyddi allavega deginum í miðbænum með Theresu og Söru, löbbuðum heillengi, litum aðeins inn í mollið og fórum í WallMart að kaupa kodda, sjampó, handklæði, sólarvörn, bómull og ýmsar nauðsynjavörur. Þetta var viiirkilega heitur dagur í dag, við vorum allar löðrandi í svita og búnar á því. Ég tók svo taxa alla leið til baka (skólinn og húsið sem ég er í er 30 min frá miðbænum) og borgaði bara þúsundkall fyrir það. Kom inn, spjallaði við senjoruna, fór í langþráða sturtu eftir langan dag, setti á mig bodylotion og kældi sólbrunann á öxlunum eftir daginn og sit núna á rúminu með fersk nýtýnd mango og ávexti að læra undir TOEFL prófið sem ég fer í á morgun:) Svo fer allur hópurinn í skoðunarferð í miðbæinn, og svo þarf ég að ákveða hvort ég taki töskurnar mínar og fari í litla herbergið í húsinu hjá Söru, nálægt Theresu og hinum nemendunum, eða hvort ég gisti hér 3. nóttina og vonist til að finna húsnæði fyrir vikulok. Þetta er stressandi! Þessi óvissa fer með mig, ég virkilega vona að ég finni eitthvað út þegar ég tala við krakkana á morgun, og líka strákarnir í stúdentasamtökunum eru mjög viljugir til að hjálpa, þeir eru búnir að leigja út öll húsnæði á þeirra vegum, en ætla að hjálpa mér. Get líka fengið að gista hjá þeim ef ég er vandræðum þegar ég þarf að fara héðan á föstudaginn ef ég verð ekki komin með annað hús.
jæja, tuðblogg... sorry, þetta var mest fyrir m&p til að sjá hvað er í gangi:)
No comments:
Post a Comment