Æji ég hef það svo gott:)
eitt sem ég verð að nefna- Það er ótrúlegt að sjá hvernig Mexicanar keyra, það eru sjaldan skilgreindar akgreinar og það er sveigt fram og til baka. Enginn í beltum, og allir pallbílarnir eru með pallinn fullan af fólki, ungabörnum jafnvel. Og á móturhjólum eru heilu fjölskyldurnar og kornabörnin hanga bara undir handleggnum á fólki. Sá líka ca 10 ára strák með kornabarn undir hendinni á reiðhjóli.
Í gær vorum ég og Theresa í mollinu sem er hérna við hliðina á, La Gran Plaza nánast allan daginn. Það eru útsölur og allir kjólar og bolir voru á 900-1200kr. Gerðum góð kaup, ég keypti:
* Gallastuttbuxur sem ég elska, geggjaðar úr Mango
* 7 boli/síða kjólaboli
* 1 kjól* 2 eyrnalokkar og 5 hárbönd
* 2 bandeau toppa
* risastóran peach trefil
allt þetta kostaði 15þúsund! Núna er ég vel dressuð fyrir skólann, gaman að gera góð kaup:) Búðirnar eru snarvangefnar, þær eru svo flottar!
Í gærkvöldi fórum við öll sem búum hérna og líka allir íbúarnir í 2 öðrum húsum saman út að borða. 1 strákurinn sem býr hérna með mér á þessi 3 hús, og það eru reglulega haldin svona kvöld, sem er mjög sniðugt. Við fengum okkur 1 bjór og borðuðum nautakjöts torta, sem er dáldið traditional fyrir þessa borg. Kjöftuðum mikið og öllum fannst voða sniðugt að læra að segja Eyjafjallajökull:) Það var mikið að gerast í borginni í gær, en við ákváðum að fara bara heim k
Í morgun vöknuðum við Sarah, fengum okkur mor
Þegar við komum
í skólann þá biðu okkar rútur. Það er sér rútustöð inni á skólalóðinni, með sér rútum frá skólanum og bílstjórum. Voða fancy allt. Við fórum í bæinn Tequila sem er í kannski 1.5 klst akstri frá Guadalajara. Við skoðuðum Tequila verksmiðju og fengum að smakka mismunandi og lærðum um ferlið sem er ótrúlegt. Sáum mann vera að taka Agave plöntuna og vinna hana með gamaldags hníf, en tequilað er unnið úr þessari plöntu. Hún er alveg eins og risastór ananas, nema blöðin eru blá og hörð. Síðan fórum við öll saman í pikknikk undir ávaxtatrjám, með risavöxnum Papaya, mangóum, lime og appelsínum. Á heimleiðinni var komið við í litlum sveitabæ og þar keypti ég nokkra minjagripi, aðallega handa mömmu;) No worries, þetta er ekki eitthvað drasl, þú munt elska þessar gjafir;)Þegar við komum aftur í skólann, tókum við Sarah og 2 þýskir strákar saman bussinn heim. Þýsku strákarnir búa í húsi ekkert það langt frá og eru með sundlaug sem þeir buðu okkur að nota hvenær sem er- það verður gott að chilla úti í garði við sundlaugarbakkann hjá þeim:) svo komum við Sarah aðeins við í mollinu því hún vildi kaupa alveg eins kjól og ég hafði keypt mér í gær og svo löbbuðum við heim:)
Vona að allir hafi það rosalega gott heima á klakanum:)
ástarkveðjur frá Sunny México <3
No comments:
Post a Comment