Sunday, August 29, 2010

PARADÍS Í MEXICO

þessi helgi.... var án efa magnaðasta helgi lífs míns!

seinasta vika var líka góð:
Mánudagur: var í skólanum til hálf10, Rogelio og Luis vinir mínir skutluðu mér heim, allir roommatearnir mínir voru heima, svo við vorum bara að hlusta á tónlist, kjafta, elda mat og svona...
Þriðjudagur:
Miðvikudagur: ég og Jenny fórum á Chalet. Restin af hópnum fór á Passion Pit tónleika en við ákváðum að sleppa því, þar sem Lady Gaga er væntanleg ásamt fleiri tónleikum sem við viljum frekar fara á :) Við fórum á klúbb sem heitir Chalet, og JuanPis vinur okkar er manager þar svo við komumst strax inn, en þetta er mjög eftirsóttur klúbbur, aðalkvöldin eru miðvikudagskvöld og miiiikið um manninn þá.
Fimmtudagur: tók ein bussinn heim úr skólanum, hann fór einhverja hliðargötu sem var nóg til þess að rugla mig í ríminu, þannig ég þurfti að hoppa úr bussinum og taka taxa heim. Var reyndar bara í næstu götu, en þetta er svo stór borg að það að bussinn skyldi taka smá hliðargötu dugði til að ég kolvilltist. Þeir gera þetta strætóarnir! Um kvöldið kom Theresa til mín, herbergið mitt uppi á 3.hæð er loksins tilbúið:) Þegar maður labbar inn í Casa Tequila þá er gangur og stofur á sitthvorri hlið og eldhús og svona. Alltaf einhverjir roommates þar. Þegar maður labbar gegnum húsið er smá opin verönd. Þar er þvottahúsið og brunastigi. Þegar maður labbar upp brunastigann þá býr Aurelie á 2. hæðinni og uppi á 3.hæðinni er pleisið mitt. Maður labbar inn í smá forstofu. Þar á að koma ísskápur og sófi. Núna er Jenny vinkona mín með rúm þar, því hún ætlar að gista hjá mér í mánuð. Inn af forstofunni er pínkulítið skrifstofuherbergi og svo er gangur sem er með nýja sæta baðherberginu okkar og svo hjónaherberginu mínu. Hjónaherbergið er stórt og bjart með glugga með þvílíku útsýni, walk in closet fyrir fötin mín og draslið og svo er hurð hliðina á rúmminu mínu sem liggur út á þakið:) á morgun kemur skúringakonan og þrífur þakið fyrir mig svo ég get keypt húsgögn í vikunni:)
Semsagt þá var ég í því að flytja allt dótið mitt upp á fimmtudaginn, það kom lásasmiður að laga lásinn og einhver var að setja sturtuhengi og svona upp:) klukkan 10 var allt ready og þá hringdum við stelpurnar í strákana og buðum þeim í smá heimsókn. Fengum okkur bjór uppi á þaki hjá mér, ég, Jenny, Fiona, Sophie og svo LuiMi og Michelangelo. Theresa kom svo, og Ivan vinur okkar sótti okkur og tók okkur með sér í party hjá Mexicönskum krökkum, sem eru öll nemendur við TEC. Gaman að kynnast fleirum úr skólanum. Við vorum ekki lengi því Rojo og fleiri úr hópnum komu í partyið og við ákváðum að fara á klúbb sem heitir Americas því það var einhver frægur Þýskur dj að spila og Theresu dauðlangaði að fara. Mér leist ekkert á blikuna þegar ég kom, þetta var aðeins of mikið fyrir mig, ég týndi Theresu og hópnum og það var ekkert samband en sem betur fer náði ég í vin minn sem heitir Gome og hann kom og sótti mig og ég fór með honum á annan stað sem heitir La Mala Noche. Hann er alveg týpískur mexicanskur staður. Allir standa bara eða sitja við flöskuborð, og í miðjunni er bar, og uppi á barborðinu er karl og kona sem syngja og syngja týpísk mexicönsk lög og allir syngja með. Dáldið svona Lífið er yndislegt fílingur. Gome og vinir hans keyptu kampavín, svo ég poppaði kampavínsflösku og það var kveikt á blysum og þetta endaði sem fínasta kvöld:)

á föstudaginn var hópurinn okkar búinn að ákveða að fara til Puerto Vallarta, sem er strönd við Kyrrahafið. Það var allt eitthvað óljóst í lokin þar sem helmingurinn af hópnum vildi fara til Tapalpa í staðinn, sem er fjallabær, og það voru allir að reyna að fá alla hingað eða þangað. Því ákvað ég bara að sleppa þessu veseni og þyggja boð Gome um að fara í paradísar resort á strönd hliðina á Puerto Vallarta (20 min frá), sem heitir Sayulita! Gome sagði að vinur hans ætti ótrúlega fallegt resort þarna, og það hefði verið valið topp 10 fallegustu strandhúsum heims árið 2009. Hann ætti líka snekkju þarna sem við gætum farið á ef veður leyfði. Ég var aldeilis ánægð með ákvörðunina og tókst að draga Jenny með mér. Á föstudeginum klukkan 3 mætti svartur kaggi að sækja okkur. Inni í kagganum var Gome, 2 vinir hans og BÍLSTJÓRI. Bíllinn var skotheldur, með 3földu gleri og allskonar aukabúnaði. Það kom seinna í ljós að þetta var bílstjóri Gome og þetta paradísarresort var resortið HANS, en ekki vinar hans eins og hann sagði. Við tókum 3,5 tíma roadtrip á þetta, brunuðum á ströndina í skothelda jeppanum, bílstjórinn spilaði tónlist í botni og við skemmtum okkur konunglega. Þegar á leiðarenda var komið voru vinir Gome mættir. Þetta var alveg eins og í Gossip Girl, stelpurnar eru allar með sílicon, hafa farið í nose-job og meira að segja strákarnir hafa farið í nose job, fengið sér brjóstvöðvaimplants og allskonar aðgerðir. Allar stelpurnar voru með Bvlgari sólgleraugu og Luis Vuitton töskur og strákarnir allir í Ralp Lauren, Polo eða La Coste fötum. Engu að síður voru þetta fínustu krakkar, við skemmtum okkur svo ótrúlega vel:) fórum öll í sundlaugina, sem var byggð á stalli í fjallshlíðunum þannig það leit út eins og maður væri oní sjónum. Resortið var þvílíkt fallegt, maður þurfti að keyra langa leið oní á til að komast þangað. Þegar komið var að því var hringaðkeyrsla og gosbrunnur, og það var risastórt stráhús í miðjunni, með sófum, sólstólum, eldhúsi og plássi fyrir þjónustufólkið. Maður labbaði niður til að komast að sundlauginni, smá helli fyrir framan sundlaugina til að slaka á inni í, og svo var hægt að labba niður á ströndina. Einnig var jógapláss, á smá tanga sem teygði sig út í sjóinn, hvítur sandur og kaktusar, svo hægt er að gera jóga þarna á morgnana úti í miðjun sjónum. Fyrir ofan herlegheitin, lengra uppi í fjallshlíðunum eru brýr og stígar sem liggja að sirka 10 hvítum stráhúsum, sem eru bara gestahús fyrir hvern og einn. Þetta var ótrúleg lífsreynsla. Þjónustufólkið bar ofan í okkur mat og veitingar, maður bara bað um hvað sem mann vantaði, jógúrt, tacos, scrambled eggs, gateorade, bjór, kokteila, name it, það var komið strax. Myndirnar segja meira en þúsund orð....
Föstudagur

No comments:

Post a Comment