Í gær, þriðjudag, vaknaði ég hjá senjorunni, fór í sturtu og labbaði í skólann. Það er mjög skrítið að hafa ekki bíl, það eru mjög langar vegalengdir hérna í stórborginni þannig ég get reiknað með því að labba mikið næstu mánuði :O
Strákarnir hérna eru alveg trylltir, gapa og stara, flauta og kalla og best finnst mér þegar þeir gera mjög kjánalegt svona kossa smootch hljóð! Þið vitið hvað ég er að tala um, þetta er alltaf svona þegar útlenskar stelpur labba um í Mexico og svipuðum löndum! En ég er með frábæra leið til að ignora þetta- hlusta á mexicanska tónlist í útvarpinu í símanum mínum, mér finnst alveg yndislegt að rölta um á ljósum gangstéttunum, framhjá appelsínutrjám og fiðrildum, hlusta á local útvarpsstöð í steikjandi hita og brjálaðri sól:)
Ég er búin að fjarlægja alla skartgripi og þegar ég er að labba reyni ég að vera alltaf í síðbuxum og rifnu hettupeysunni minni, helst með hárið oní peysunni og stór sólgleraugu. Tala nú ekki um nú fyrst ég er flutt í hús fjær skólanum, frekar miðsvæðis og þarf að taka bussinn í skólann í 30 min. En skólinn er mjög fínn svo það verður nauðsynlegt fyrir mig seinna að fá stóran skáp í skólanum, fyrir íþróttadótið mitt, auka skó og svona, svo ég þurfi ekki að dröslast með það á hverjum morgni á leið í skólann.
í gær fórum skólinn með okkur í bæjarferð að skoða miðbæinn, óperuhúsið, dómkirkjuna og ýmis fræg monument. Betlararnir voru á torgunum og lítil börn snigluðust um allt í von um að gera rænt eins og einu veski. Sólin brann og hitinn var óbærilegur! Ferðin var búin um 6 um daginn, svo ég labbaði til senjorunnar, fór í sturtu, pakkaði saman dótinu mínu og pantaði taxa.
Tók taxann niður miðsvæðis, nálægt La Gran Plaza mollinu í götu sem heitir Tequila:) Calle Tequila:) Þetta er stórt hús, fallegt að innan, auðvitað með smá mexico brag- þeas smá göt á veggjunum, brotnar flísar á baðherberginu og svona, en þetta er virkilega flott hús miðað við miðbæ Mexico. Hjá senjournni var allt glænýtt og stylish, bara eins og á fínu hóteli, en það var ekkert mexicanskt við húsið hennar nema litirnir og lögunin á húsinu. Casa Tequila er alvöru mexicanskt. Mætti hingað um 8 í gærkvöldi, henti töskunum inn, talaði við eigandann, lærði á þvottavélina, og svo rölti ég yfir til Theresu þýsku sem býr í þarnæstu götu og við fórum saman á BurgerKing sem er rétt hjá og út í supermarkað að kaupa ís og smá bjór fyrir kvöldið. Í húsinu búa held ég 6 strákar og svo Sarah franska og ég. Svo fórum við þrjár, ég, Sarah og Theresa í taxa í welcome party, og það reyndist verða insane!!!
Partyið var alvöru, þetta er hús sem nokkrir mexicanskir nemendur við TEC búa í, þau eru í forsvari fyrir stúdentasamtök sem heita Conexion og aðstoða skiptinema við að finna hús og ýmislegt. Þau eru þekkt fyrir brjáluð party, og þetta staðfesti það alveg! Það var endalaust af margaritum í boði, jelloshots, tequila, svo var DJ úti í garðinum, ljósashow og allir mexicanarnir dansandi (dáldið öðruvísi en maður er vanur) og svo voru menn í búningum úti í garðinum að dansa og auglýsa skemmtistaði og party sem verður haldið í kvöld og næstu daga. Takið eftir að í gær var þriðjudagur. Það skiptir engu máli hvaða dagur er, það eru party hérna öll kvöld. Ég tek þetta í hófi, en það er nauðsynlegt að láta sjá sig fyrstu dagana til þess að kynnast fólkinu. Við erum eitthvað um 200 skiptinemar, allt ungt fólk og fyrst í partyinu í gær var maður virkilega að spjalla við fólkið. Allt í einu kom brjáluð þruma, himinninn lýstist upp og allir fögnuðu brjálað hehehe, en svo kom líka strax á eftir ÚRHELLI þannig allir öskruðu og reyndu að komast inn úr garðinum, nema nokkrir sem dönsuðu í grasinu með tequila flöskurnar:) á nokkrum mínútum sást ekki lengur í grasið í garðinum, vatnið varð alveg 10cm djúpt á no time! Partyið varð insane á þessum tímapunkti svo við stelpurnar ákváðum að brjáðum væri tími til að yfirgefa svæðið, enda bara fyrsta partyið og svona.
En þetta var virkilega gaman og ég hlakka til að fara í skólann í dag og hitta fólkið aftur frá því í gær:)
Í Casa Tequila, þar sem ég bý, er mjög stutt í alla þjónustu, ég er mjög sátt. Einnig eru mikið af stúdentum í götunum í kring og mikið af fólki. Mun betra að rölta hér um heldur en í fínu úthverfunum þar sem fínu göturnar eru auðar eins og hjá senjorunni. Ég fíla þetta mun betur, geta hoppað út í supermarkað á horninu, veitingastaði, mollið, starbucks, banka og þannig.
Jæja, þarf að mæta í skólann um 1, og ætla fyrst að fara út í búð og kaupa nauðsynjavörur og þvottaefni, því ég er ekki með neinn mat hérna og þarf að þvo nokkrar vélar í dag. Páulina mætti í skólann í morgun, og hún býr á campus á skólalóðinni, svo ég hlakka til að hitta á hana, og svo jafnvel kíkja í mollið á leiðinni heim:)
Vona að allt sé gott á klakanum, verið endilega duglegri við að senda mér fréttir:) Chiao
No comments:
Post a Comment