Er mætt til Guadalajara!
Í gær lokuðu foreldra Páu búðinni sinni og við eyddum deginum í roadtrip til nágrannaþorpa. Margt og mikið að sjá og skoða. Enduðum daginn á góðum veitingastað en þá byrjaði að hellirigna, ég hef aldrei aldrei séð jafn mikla rigningu (tók það upp á video, því vatnið fossaði niður með svo miklum krafti að það skvettist langt upp í loftið aftur). Það varð hálfgert flóð þannig við gátum ekki keyrt strax til baka, fyrir utan að það fylgja alltaf eldingar og bleyta á veginum+eldingar=stórslys!
Í dag fékk ég nopales (kaktus) quesadilla í morgunmat sem var mjög áhugavert að smakka. Þeir vaxa út um allt villtir og eru seldir í öllum búðum og allskonar afurðir af þeim. Síðan lögðum við í hann til Guadalajara. Planið var að ég myndi hitta aðra skiptinema á hosteli, en þar sem hostelið er langt í burtu ákváðu flestir krakkarnir að redda sér bara fyrstu nóttina og hittast á morgun í skólanum og finna helst íbúðir strax á morgun. Við stoppuðum í La Gran Plaza (risastórt moll í borginni) til að komast á internet á Starbucks og hringdum svo í e-a konu sem er að leigja út herbergi hliðina á skólanum í einu fínasta hverfinu í borginni, svo ég gæti byrjað að vera þar 1-2 nætur þar til við krakkarnir finnum okkur íbúð.
Þegar við komum á staðinn þurftum við að keyra gegnum öryggishlið með vörðum sem skrá niður allar ferðir. Þetta er fínasta hverfi. Hjá konunni búa 6 strákar sem eru í skólanum mínum. Ég fékk stórt herbergi með fínu baðherbergi. Eftir að hafa kvatt Páu og fjölskyldu bauð gamla konan mér að koma með sér í messu. Konan er með einn fót og heitir Senora Solidad. Það var mjög sérstakt að fara í messu kl.7 um kvöld hér í Mexico, troðfullt af fólki, og allt voða alvarlegt. Ég söng hástöfum með sálmunum (fengum bækling) og borðaði oblátur og kraup og bað og gerði allt eins og Senjoran gerði:) Hún söng manna hæst, og verulega falskt:) Ég þurfti að fara í síðbuxum, og þær einu sem ég er með eru Nike íþróttabuxur, en á föstudaginn elduðum ég og Páu Hjónabandssælu fyrir foreldra hennar, og auðvitað tókst mér að brjóta egg á hnénu á mér og sulla yfir mig alla! En ég setti bara fléttu í hárið á mér, fór í eggjuðu buxurnar, þreif það mesta, fór í hvíta skyrtu yfir og stóð mig ágætlega við að aðstoða einfættu senjoruna:)
Eftir messuna áttaði ég mig á því að gamla einfætta konan er algjör töffari. Hún tók mig á rúntinn í Guadalajara, sýndi mér hvaða hverfi ég ætti að varast og hvað væru góð hverfi, keyrði mig að stærsta mollinu (sem er sirka eins og 10 Kringlur) og bauð mér upp á ís:) Síðan fórum við í súpermarkað hérna nálægt svo ég gæti keypt sjampó og annað nauðsynlegt. Við ræddum um allt milli himins og jarðar, stráka, áfengi og brjóstastækkanir. Gamla einfætta átti frumvkæðið að því samt haha! Hún talar mjög litla ensku, en við héldum alveg samræðum á spænsku/ensku. Mikið er hún yndisleg, og líka strákarnir sem búa hérna. 
Núna er ég bara uppi í herberginu mínu að undirbúa svefn, með einn kaldan Pacifico á kantinum, loftkælingu og hamingjusöm með lífið og tilveruna:) Hlakka til að vakna kl.8 í fyrramálið og mæta í skólann að hitta alla krakkana, og fara svo eftir skóla að leita að húsnæði! Ein frönsk stelpa fann hún sem hún segir vera fullkomið, 2ja herbergja á 43þúsund á mánuði per manneskju, og hana að vantar sambýling svo ég ætla að kíkja á húsnæðið með henni á morgun. Þetta er dýrasta íbúðin sem ég hef séð (allt svo rosalega ódýrt hérna) en hún er í Providencia sem er hverfið sem mig langaði mest til að búa í í upphafi! Flottasta hverfið! Sé til á morgun:)
Ég er ekki lengur með íslenska númerið mitt, það þýðir ekki að hringja né senda sms í það.
Hey já, í dag keyrðum við götuna þar sem risastór fíkniefnabarón var myrtur á föstudaginn. Ignacio "Nacho", eitthvað þannig! Þetta kom m.a.s. í fréttunum á mbl.is. Einn stærsti glæponinn í Mexico, og löggan myrti hann í áhlaupi á föstudag, í götu hérna rétt hjá skólanum. Mjög skrítið að keyra þessa götu, bara villur og marmarahús og runnar klipptir í allskonar fígúrur.
vá ég er búin að sjá svo margt og prufa svo margt, og er mjög samviskusöm að punkta allt niður í Mexican pink bókina frá Snædísi minni! (dökkbleikur litur er kallaður Mexican pink hérna!) ég segi frá öllu næst:) Já og flugurnar hérna ELSKA mig! Sú sem beit mig á miðja vinstri rasskinnina hefur heldur betur komist í feitt!!! ég er öll bitin, og engin sprey virka!
Kveðjur frá México!
No comments:
Post a Comment