Ég er loksins komin á leiðarenda:)
Flugvélin frá Phoenix til Guadalajara var pínulítil 10 raða rella. Hún tók nokkrar dýfur og fólk hrópaði upp yfir sig og mann kitlaði í magann. Svo tilkynnti flugstjórinn að við værum að fljúga í gegnum thunderstorm. Þvílíkar eldglæringar, ég á ekki til nógu stór orð til að lýsa þessu! Himinn logaði og litirnir og birtan var stórfengleg! ég hef séð þrumur... en þetta.... vá!
Við hlið mér sat risastór maður, Stuart Browne, mjög almennilegur ameríkani sem hefur búið í Guadalajara í nokkur ár. Hann gaf mér emailið sitt og bauðst til að koma mér í samband við son sinn sem er í hinum háskólanum í borginni og 17 ára dóttur sína og sagði að þau myndu geta sýnt mér borgina.
Þegar við lentum í Mexico var ekkert vandamál, sem betur fer voru töskurnar mínar með í vélinni, þær s.s. höfðu fundist! Páulina og fjölskylda tóku vel á móti mér og við tók 3ja tíma akstur í kolniðamyrkri til 3 um nóttina. Vegirnir voru vægast sagt hræðilegir, það sprakk á dekkinu hjá okkur, því það er rigningartímabil núna og rignir þvílíkt á nótt unni og vegirnir eru ekki betur gerðir en það að þeir grotna bara og eru hálf ófærir.
Á endanum keyrðum við upp fallega hlíð, með beljum og hestum við vegina. Keyrðum inn um lokað hlið og upp að hverfinu þeirra. Húsið er ofboðslega fallegt, útsýni yfir alla borgina, Lake Chapalla sem er risastórt vatn þarna, og fjöllin og allt í kring. Þetta útsýni er alveg to die for!
Við drifum okkur að sofa, enda þurftu foreldrar hennar að vakna kl.6.30 og klukkan orðin 3.
Fyrsti dagurinn í Mexico var bjartur og sólríkur. Við Páw sváfum til 11 og fórum þá í sturtu og tókum okkur til:) Ég keyrði Páw niður hlíðarnar og inn í borgina! Aksturslagið er klikkað hjá Mexikönum, þeir búa meira og minna til sínar eigin reglur og sveigja fram og til baka þvert yfir göturnar, akgreinarnar eru ekki afmarkaðar og skiltin eru óskiljanleg eða ekki til staðar. Engar biðskyldur og maður þarf bara að láta vaða!
Þetta gekk samt vel hjá mér, ég byrjaði að keyra súper varlega, en áttaði mig fljótt á að ég þyrfti að vera aðeins meira aggressive, og það gekk vel:) í miðbænum voru þröngar götur og mikið mannlíf, skraut yfir öllum götum, þvílíkt litrík hús, markaðir, sölufólk og nóg að gerast! Við löbbuðum heillengi um, fengum okkur að borða mexicanskan mat á matsölustað þar sem öll fjölskyldan hjálpaðist að við að elda og afgreiða. Maturinn var mjög góður, ég var smá hrædd um að ég myndi verða veik, en það er munur á að fara varlega og vera paranoyed. Ég er mjög dugleg að þvo mér um hendurnar Pabbi, og er með sprittið í veskinu! Það kom mér á óvart hvað mexicanar nota mikið hendurnar, moka baunamaukinu og sósunum upp á tortillas með puttunum og skófla þessu í sig. Á matsölustaðnum leyfði konan mér að smakka eitthvað, tók bara sleifina, setti smá lasagna á hana og rétti mér... ég hafði ekki hugmynd um hvað ég ætti að gera og Páw sagði bara: take it with your fingers, þannig ég tók bara lasagna með puttunum af sleifinni sem fór svo beint ofan í matinn aftur! Ég ég nokkuð viss um ég eigi eftir að verða veik á e-m tímapunkti, en ég borða bara það sama og Páw og fjölskylda hennar gerir og fer varlega þess á milli.
Við fórum í Supermarket sem var álíka stór og Kringlan. Ávaxtadeildin vakti mesta athygli mína, mig langaði að smakka allt! Endaði á að kaupa 7 mismunandi ávexti sem Páw sagði að ég yrði að prófa og ég hef aldrei séð eða heyrt um áður!
Það er ótrúlega fallegt og skemmtilegt hérna! Það eru endalausir hlutir að sjá og gerast allan daginn! Ég er í góðu yfirlæti, háma í mig framandi ávexti, kryddaðan mat sem lætur mig tárast, allskonar safa, og ég ætla að elda og smakka kaktus í kvöld, sem heitir Nopal og vex villtur út um allt, m.a.s. í bakgarðinum hjá þeim. Litirnir á húsunum, skrautið sem hangir milli allra ljósastaura þvert yfir göturnar, fólkið og dýrin eru yndisleg. Það er ekkert óeðlilegt við að sjá gamlan Mexicana á hestbaki með kúrekahatt í rifnum gallabuxum og skítugri skyrtu fara þvert yfir þjóðveginn í borginni með 2 stóra mjólkurbrúsa bundna við hnakkinn. Pallbílar með fulla palla af fólki á leið í vinnu, vespur og mótorhjól með kannski heillri fjölskyldu á, kornabörn jafnvel og enginn með hjálm. Varðhundar eru út um allt, hænur og asnar.
í morgun vöknuðum við öll kl.6.30 og keyrðum frá Sahuayo, sem þau búa, yfir til Ocotlán, þar sem þau vinna. Fórum í morgunverðarbuffé á hóteli á leiðinni við Lake Chapalla og maturinn var svo sterkur að ég táraðist í fyrstu:) haha... sáum svo risastórt mangótré með þroskuðum mangóum, og ég týndi nokkur lime af límónutré. Núna erum við í vinnunni hjá foreldrum Páw þar sem ég komst í internet. Ætlum að fara að rölta út bráðum og skoða Ocotlán:)
Ég verð að viðurkenna að ég er dáldið öðruvísi en flestir hérna, ég hef ekki séð neinn ljóshærðann. M.a.s. í gær þegar við keyrðum í miðbæ Sahuayo þá vorum við að labba á torgi og það var lúðrasveit að spila, og einn leggur frá sér trompetið til þess að smella af mér mynd! Ég vissi ekki alveg hvernig ég átti að láta, en setti bara hárið í snúð, setti upp sólgleraugu og reyndi að láta lítið á mér bera. En þetta er mjög áhugavert. Og gamlar indjánakellingar brostu til mín tannlausu brosi og vinkuðu og störðu. Ég ákvað að fara út í morgun í síðbuxum og hettupeysu, fínt svona til að byrja með, þrátt fyrir hitann og sterka sólina.
Vona að þið hafið það gott, kveðjur frá Ocotlán:)
No comments:
Post a Comment