Tuesday, July 27, 2010

Boston

Er í Boston:)

Var með tárin í augunum þegar ég lagði af stað í morgun. Sem betur fer hitti ég kunningja minn og bróður hans á flugvellinum og það alveg bjargaði biðinni:)

Mér leist ekki á blikuna þegar ég sá að við hliðina á mér í flugvélinni var 5 ára gömul stelpa með allan dótakassann sinn með og mamma hennar með nokkura mánaða beibí í fanginu! Ekki bætti úr skák að barnið var búið að kúka í bleyjuna. Endaði samt á að spjalla heilmikið við konuna sem var sænsk, en gift kana og búsett í Boston. Ég hjálpaði henni dáldið með beibíið og varð strax hugsað til Hönnu minnar og litla skvísunnar sem tekur á móti mér þegar ég kem til baka;) Ég er byrjuð að æfa mig Hanna:) Sænska konan var virkilega nice og bauðst til að hringja í vinkonu og redda mér ódýrri gistingu á Marriott hóteli í miðbæ Boston. Ég ákvað samt að hinkra bara á flugvellinum í nótt, flugið fer kl.6am þannig ég hef nóg að gera hérna í nótt. Átti rómantískan dinner með sjálfri mér á einhverjum veitingastað hérna, keypti nóg af nammi, skoðaði mig um á flugvellinum og labbaði svo aðeins út í 30 stiga hitann hérna í Boston. Svartir ómerktir Ford jeppa löggubílar komu brunandi með blá ljós, og hlupu eitthvað inn í flugstöðina. Hasar í gangi!

Mikið var ég glöð þegar ég fann þennan fína Dunkin' Donuts stað hérna í flugstöðinni, sem er opinn 24/7! Kom mér vel fyrir á gólfinu (því einu innstungurnar eru á gólfinu til að hafa tölvuna í sambandi) og fékk aðstoð frá þessum líka hressa berfætta kínverja með að tengjast internetinu. Núna sitjum við bara saman með Ice-coffee og Donuts og höfum það gott:)

Á morgun fer ég í 2 flug, samtals 9 klt í flugi og ég verð loksins komin á leiðarenda til Páulinu og Romeros fjölskyldunnar ca 3am á miðvikudagsnóttina á ísl tíma:) Þokkalegt ferðalag sem hófst síðdegis í dag, þriðjudag! Ég hitti líka þennan fína gamla öryggisvörð sem leiðbeindi mér þegar ég lenti hérna, og hann er búinn að koma og tékka á mér nokkrum sinnum, hafði miklar áhyggjur og settist hjá mér og lagði mér lífsreglurnar þegar vaktinni hans lauk núna áðan:)

Vona að allt sé gott, elsku m&p veriði góð við Söru&Töru fyrir mig

Love-

Þórunn <3

No comments:

Post a Comment