Var mjög glöð þegar ég kom til Phoneix. Var þá alls búin að fljúga í 6 tíma til Boston, bíða í 12 tíma á ísköldum flugvellinum í Boston og svo þessa 6 niður til Phoenix. Beið í 3 tíma þar og var farin að iða í skinninu að hoppa upp í 3. vélina til Guadalajara. Ég var orðin ansi sjúskuð, þreytt og óþreyjufull þegar það var loksins byrjað að hleypa inn í vélina til Gdl. Þegar ég var að fara að labba inn í vélina, þá er ég stoppuð og sagt að ég sé ekki með Visa áritun til að fara til México, og því geti ég ekki farið í vélina þangað. Síðan leit maðurinn betur á passann minn og sagði að ég væri heldur ekki með áritun til að vera hérna í USA, hringdi símtal og sagði mér að setjast niður, ég væri ekki að fara fet.Ef þeir myndu hleypa mér inn í vélina þá myndi ég bara lenda í immigration í Mexico og það myndi ég sko ekki vilja. Þeir myndu senda mig beint til baka. Ég virkilega reyndi að herða upp hugann, en ég var alveg buguð af þreytu og óhollum mat, þungum handfarangri og höfuðverk. Þegar allir voru komnir inn í vélina nema ég og ég sá hana fljúga í burtu þurfti ég að hafa mig alla við að halda aftur af tárunum. Ég fór aftur að deskinu og spurði hvað í ósköpunum væri í gangi og hvað væri næsta skref!?! Þeir gáfu mér addressu hjá Mexicanska Embassyinu í Phoenix og sögðu mér að fara þangað og sjá hvað þeir segðu.
Ég fór inn á klósett, þvoði mér í framan, setti hárið í tagl, hengdi símann um hálsinn eins og alvöru ferðamaður, kom öllum pappírum vel fyrir í töskunni, og arkaði út af flugvellinum, alein og í algjörri óvissu um hvað myndi gerast næst. Í Arizona tók á móti mér bullandi hiti, þetta var eins og að labba á vegg. Ég hoppaði upp í Taxa, og við brunuðum lengi lengi í átt að Mex.Embassy. Þegar þangað var komið þurfti ég að fara í gegnum vopnaleit og inni voru tugir mexicana sem sátu og biðu í von um að fá einhver leyfi. Þvílíkt mikið af fólki, mjög sérstakt. Ég fékk strax afgreiðslu hjá yndislegri stelpu sem botnaði ekkert í því hvers vegna mér hafi verið meinaður aðgangur í vélina. Hún hringdi í Immigrationið í Mexico og þeir könnuðust ekkert við að neinn frá flugvellinum hefði hringt þangað, né að þeir hefðu sagst myndu senda mig beint til baka. Þannig það veit enginn hvaðan þessar upplýsingar komu og af hverju mér var ekki hleypt inn. Seinna viðurkenndi yfirmaður U.S airways fyrir mér að þetta hefðu verið slæm mistök af hálfu starfsmanns þeirra.
Ég bað um að fá alla stimpla og útprentanir sem mögulega gætu komið að gagni. Stúlkan var mjög hjálpsöm og truflaði m.a.s. sjálfan konsúlinn á fundi til að fá hann til að kvitta í passann minn um að íslendingar þurfi ekki visa til að koma til usa né mexico í allt að 180 daga.
Ég tók aftur taxa í hitanum upp á flugvöll, og gat þá aðeins notið þess að horfa í kringum mig. Phoenix er full af kaktusum og blómum, allt frekar þurrt og beislitað, sandur og mold, en mjög fallegt landslag, fjöll og pálmatré.
Mætti á flugvöllinn og talaði við þjónustuborð og sagði frá öllu sem gerst hafði, fékk þúsund afsakanabeiðnir, starfsmaður documentaði allt niður í tölvukerfið og furðaði sig á því hvers vegna sá sem hafði vísað mér frá borði fyrr um daginn hefði ekki documentað þetta, eins og skylda er þegar eitthvað svona gerist. Þess vegna vissi líka enginn hvað hafði orðið um farangurinn minn, hvort hann hefði farið með vélinni eða tekinn út. Starfsmenn eiga að documenta allt svona, og þessi var greininlega ekki starfi sínu vaxinn. Ég fékk 10 dollara matarmiða í skaðabætur og það dugði fyrir pizzu en ekki kóki með haha! Var sett á biðlista í vélina sem átti að fara kl.18 um daginn (ég átti pantað flug kl.12.10) en annars var ekki laust sæti fyrr en 10 daginn eftir. Ég ákvað að fylgja þessu vel eftir, því nokkrum sinnum þegar ég tékkaði þá hafði einhver fært mig aftar á biðlistann. Sem betur fer var einn starfsmaðurinn x-tra nice og hafði heyrt hvað hafði skeð og hann sá til þess að ég héldist nr.1 á biðlistanum. Þegar allir voru komir um borð í 6 vélina kom hann til mín og spurði hvort ég vildi fá gluggasæti eða gang :) ég hoppaði af gleði, það hafði semsagt losnað 1 pláss í þessa vél, svo ég hringdi í Páulinu og fjölskyldu, og hélt af stað til Mexico!!!
No comments:
Post a Comment