Sunday, August 15, 2010

Helgin í Mexico

síðustu dagar hafa verið frábærir!
Á fimmtudag fórum við Theresa í Gallerias mollið- stærðin á þessum mollum er ólýsanleg! Þegar ég var nýkomin heim hringdi JuanPablo vinur minn og sagði að hann væri að fara að koma að sækja mig- við værum að fara í party! Hann og Chinos komu að sækja okkur og við fórum heim til Juan Pablos, en hann býr í lúxushverfi sem heitir Santa Anita og er í hinum enda borgarinnar, alveg syðst. Húsið er risastórt, með sundlaug, foss, sundlaugarhúsi, hengirúmi, útibar og name it... við slógum upp smá partyi og fleiri gestir komu. á einhverjum tímapunkti flæddi upp úr heitapotti inni hjá honum, þannig allt parketið var á floti. Við reyndum að þurrka það sem við gátum, en honum fannst þetta ekkert mál. Hringdi bara nokkur símtöl og fékk menn til að mæta á staðinn og skipta um parket í öllu svefnherberginu! Bara sí svona!

á föstudeginum bauð JuanPablo mér út að borða í hádeginu í golfklúbb í Santa Anita, sem hann er meðlimur í. Þetta líf sem þessir strákar er mjög skrítið. Þeir keyra allir um á hvítum jeppum, ganga með Breitling eða ReymondWeil úr og eru allir með nýjustu týpuna af RayBan. Það er mjög gaman að hanga með þeim og ég er mjög fegin að hafa kynnst þeim, því þeir passa vel upp á mann og bjóða manni að koma hingað og þangað og gefa manni tækifæri á að sjá hluti sem maður fengi ekki að sjá annars. Það er aldrei neitt vesen, þeir bara láta sækja mann, skutla manni eða kaupa það sem vantar. Samt ótrúlega skrítið að sitja í bíl með þeim og keyra svo eftir götunum þar sem betlararnir banka á gluggana og biðja um nokkra pesóa í skiptum fyrir gluggaþvott eða tyggjó.

seinna á föst.kvöldinu kom JuanPablo og Etzell vinur hans aftur að sækja mig og ég fór með þeim í eitthvað party. Þar var mikið af fólkinu sem ég hafði hitt í þriðjudagspartyinu (þegar við fórum óvart í vitlaust party og enduðum í villunni þeirra bræðra Daniels og Javiers). Gaman að vera í partyi með infæddum og kynnast þeim. Seinna um kvöldið fórum við öll á klúbb sem heitir Bosse og þar voru keypt nokkur flöskuborð og fish bowls og dansað fram eftir nóttu:) Strákarnir voru að fara daginn eftir í Tequila verksmiðju sem fjölskylda eins þeirra á og buðu mér og Theresu að koma með, og gista í eina nótt á Tequila býlinu:)
Við þáðum það og kl.2 á laugardeginum kom Etzell og Chino að sækja okkur. Það var hækkað í græjunum, og brunað í villuna þeirra Daniels og Javiers, þar sem sirka 15 manns beið eftir okkur. Við fórum öll á 3 bílum (í mexico er löglegt að keyra með eins marga og komast í bíl, uppi á þaki, í skottinu, eða á pallinum). En þetta voru Escalate'ar með plássi fyrir 7 þannig það var nóg pláss fyrir okkur öll. Roadtrippið var geggjað, við skemmtum okkur ótrúlega vel.

Þegar við komum á leiðarenda voru verðir sem opnuðu fyrir okkur riiisastórt gyllt hlið, með Camarena logoinu, sem er logo Tequilans sem fyrirtækið framleiðir. Við keyrðum inn á lóðina, sem var eins og búgarður, verskmiðjan, gosbrunnar, tún, hestar, glerhús, kapella og skrautgarður. Okkur var bent á að fara í glerhúsið, og þar biðu okkar þjónar og uppdekkuð borð!
Við fengum ótrúlega gott kjöt, held það hafi verið svínakjöt og auðvitað var salsasósa og maístortillur með. Það er sama hvaða kjöt maður fær sér hér í Mexico, það eru alltaf tortillur með til að setja kjötið inn í, lime og salsa sósa:)
Þjónarnir bættu á matinn allt kvöldið og sáu til þess að allir væru með tequila í staupunum, og báru fram allskonar tequila drykki, auðvitað allt frá Camarena fyrirtækinu. Það leið ekki á löngu þar til allir voru farir að dansa og við skemmtum okkur svoooo vel:)

Reyndar kom eitthvað upp á seinna um kvöldið, sem varð til þess að Angela systir Daniels og Javiers vildi ekki gista á tequila býlinu. Þannig við 4 og kærasta Javiers fórum á eitthvað glæsihótel þarna rétt hjá, sem heitir La Monarca, og gistum þar:)

Í dag fór ég heim með systkynunum Daniel, Javier og Angelu, kærustu Javiers og 2 öðrum strákum, því hinir 2 bílarnir ætluðu að vera lengur á býlinu. Við komum við á einhverjum veitingastað til að fá okkur morgunmat, auðvitað eitthvað kjötsull og tortillur, lime og laukur með. Ekki týpískur morgunmatur hjá mér, en damn þetta var gott:)

Nóg búið að ske um helgina, þarf að reyna að hvíla mig í kvöld. Einhverjir ætla í bíó, Daniel og fleiri, en ég veit ekki hvort ég ætli. Ekki veitir af smá svefni eftir langa helgi:) verð í skólanum frá 10-21.30 á morgun, bara með klukkutíma gati klukkan 6....

Ég er amk á lífi og vona að allir hafi það gott:)
LOVE frá México <3

No comments:

Post a Comment