Tuesday, November 16, 2010

obbbbs......

Hef ekki bloggað ógeðslega lengi! Sorry!
Skrýtið, það er allt bara orðið svo eðlilegt hérna, ég er bara orðin Mexicani og ekki jafn mikið nýtt og framandi að segja frá í hverri viku. Pálmatrén, sólin, hitinn og svitinn er bara orðið eðlilegt.

Hérna í Guadalajara er orðið kalt á nóttunni. Í gærkvöldi skalf ég og nötraði og tennurnar glömruðu. Leit svo á mælinn og hann sagði "bara" 15 stig! Ég er eiginilega orðin eins og einhver hitabeltiseðla!
Á daginn fer hitinn þó upp í miklu meira, 25-30, og þegar brennheit sólin skín beint á hausinn á manni- úff, maður er bara í svitabaði!

Annars er farið að sjást að það sé haust, laufblöðin sum orðin gul og farin að falla að einhverju leiti. Ávextirnir á trjánum byrjuðu að hrynja af þeim í seinasta mánuði, og það var sko ósjaldan sem maður fékk Guyaba í hausinn þegar maður var að rölta yfir til Theresu og Jenny í þarnæstu götu, enda þarf maður að labba undir trjágöngum:)

Mexico er svo falleg, ég er svo yyyyfir mig hamingjusöm hérna og þó að ég sakni Íslands og hlakki mikið mikið til að koma heim og hitta alla og sjá fallega landið mitt, þá finn ég mig ofboðslega vel hérna. T.d. núna um helgina, þá var löng helgi, og við fórum á ströndina. Puerto Vallarta er í 4ra tíma akstri frá borginni. Það er eins og að vera kominn í allt annað land þegar maður fer frá borginni yfir á ströndina. Hitinn, sólin, allt grænt, sólbaðsstrendur og meiri túrismi. Snekkjur, skútur, bátar, jetski, fallhlífar, sölumenn, sólbruni.... ohh hvað ég elska ströndina, myndi án efa fara aftur næstu helgi, en stóra systir vinar okkar er að gifta sig, svo við erum að fara í brúðkaupið allur vinahópurinn:)

Stefni á að fara aftur á ströndina þá helgina eftir bara:)

Brúðkaupið næstu helgi verður upplifun. Systir Etzells er aaaaalgjör bjútíkvín, listakona og dáldið artí! Með skollitað sítt liðað hár, og gengur um með tóbaksklút um hausinn og í hauskúpubol. Á drullunóg af peningum og er að giftast manni sem á Mo Funk, sem er lítið tattoo/art studio. Hef nokkrum sinnum farið þarna inn, og kannast við fólkið sem vinnur þarna og þetta er bara eins og í bíómyndunum, fáránlega artí stúdío, í anda LA Ink! Brúðkaupið verður því ááán efa töff. Allir kk eru búnir að vera að safna yfirvaraskeggi í mánuð, og allar kvk þurfa að vera í SVÖRTU, og maður mætir sko alltaf í síðkjólum í brúðkaup, þannig í dag ætla ég að fara með Theresu í leit að svörtum síðkjól! Mikið er ég spennt fyrir laugardeginum. Mexicönsk brúðkaup eru þekkt fyrir að vera roooooooosaleg. Það koma skutlur að sækja okkur stlepurnar og strákana okkar... og við keyrum í 40 min út fyrir borgina! Hlakka til að sjá hvernig þetta allt verður....

allavega, við fórum á ströndina núna um helgina. Ég er aldrei í skólanum á föstudögum og svo var frídagur á mánudeginum, og ég er heldur ekki í skólanum áþriðjudögum, svo mig langaði að fara snemma á föstudegi í rútu, og koma heim seint á þriðjudegi. Það gekk ekki alveg eftir, ég hafði nokkur verkefni sem ég þurfti að klára fyrir skólann, en kl.4 á föstudeginum lögum við Theresa af stað í rútunni á ströndina. Mættum þangað svona 10, og tókum taxa að leita að einhverju hóteli sem við gætum hent dótinu okkar inn á, farið í sturtu og drifið okkur svo til strákanna okkar, en einn þeirra á glæsiíbúð í háhýsi á ströndinni sjálfri. Við fórum þangað og héldum smá precopa, og fórum svo út á lífið:) Mikið gaman! á laugardeginum vorum við á ströndinni ég og Theresa, og fórum svo aftur til strákanna og fórum svo öll saman aftur út. Þar hitti ég strák sem ég hafði kynnst nokkru áður, en aldrei neitt talað rosalega mikið við hann. Allavega, hann spyr hvort við Theresa viljum ekki koma með sér og vinum sínum á bát á morgun, sunnudag, og þegar ég segi að það gæti verið gaman þá sagði hann bara að hann myndi hafa samband við mig á morgun um hádegi og pikka okkur upp, hvar sem við værum. Næsta dag, sunnudag, vöknuðum við Theresa og fórum út við sundlaug í íbúðinni sem vinur okkar á, á ströndinni. German, sá sem bauð okkur á bátinn, var í sambandi allan daginn og kl.3 sagðist hann vera að koma að sækja okkur og spurði hvar við værum. Ég sagði að við sætum bara við sundlaugina í þessu húsi og að við myndum bara stökkva í föt og vera ready eftir 2 mín. Hann sagði bara flott, þá kem ég og sæki ykkur á ströndina, komið upp við sjóinn núna!!

Ég hélt þetta væri nú bara eitthvað djók... en við Theresa löbbum að sjónum, setjumst í sandinn og erum að spjalla saman í sólinni með ískaldan bjór í hönd, þegar þessi líka riiiistastóra hvíta glæsisnekkja siglir upp að ströndinni, og út hoppar hvítklæddur maður um borð í gúmmíbát og tekur stefnuna til okkar. Andlitið á mér var eins og ég veit ekki hvað. Við hoppuðum um borð í gúmmíbátinn sem brunaði með okkur um borð í snekkjuna. Kynntumst þarna fleiri vinum Germans, kjöftuðum, dönsuðum og skemmtum okkur vel fram undir sólarlag... Þá sigldum við til baka í litla prívat höfn, og gátum gengið upp landganginn og BEINT inn í húsið sem German á!!! Þjónustufólk og allskonar lið var þarna á ferðinni, en við vorum 5 sem sátum eftir bakatil í snekkjunni í mánaskini og drukkum ískalt romm í kók:) Mikið var þetta notalegt. Heitt úti en ekkert svo rakt, svo þetta var bara fullkomið. Við ákváðum að fara ekkert á djammið þetta kvöld, heldur sátum bara þarna á snekkjunni þar til allir voru orðnir þreyttir og þá var mér skutlað heim á hótelið okkar Theresu:)

Næsta dag, mánudag, fórum við Theresa til strákanna okkar. Fórum út við sundlaugina þeirra við ströndina og töluðum endalaust lengi saman. Hún fer heim eftir nokkrar vikur, í lok desember, og það á eftir að verða svo mikið erfitt! :/
Fékk þá skilaboð frá German um að hann væri að fara til borgarinnar í dag, og spurði hvort ég vildi far. Theresa ætlaði til borgarinnar sama dag, og allir strákarnir, svo þó ég hefði viljað vera þarna allt mánkvöldið og nýta allllan þriðjudaginn í sólinni, þá meikaði ekki alveg sens fyrir mig að vera þarna ein, borga ein hótel og borga rútu til baka, svo ég þáði bara farið með German. Fer bara aftur á ströndina við fyrsta tækifæri. Vinur hans keyrði heim, og með í bílnum voru 2 litlar frænkur Germans og barnfóstran. Litlu stelpurnar spurðu og spurðu um ísland og ráku upp stór brún augu þegar ég sagði þeim frá öllu heima! ferðin heim tók þónokkurn tíma. Það hrundi brú þarna fyrir 2 mánuðum, 2 bílar hröpuðu niður og 4 létust. Þessvegna var umferðarteppa því vinnuvélarnar voru út um allt. Hræðilegt að sjá brúnna, bara gat! Þegar við loksins komum til Gdl, þá skutlaði German mér heim, og þegar ég var komin heim spurði hann hvort ég væri svöng og hvort mig langaði að koma með sér til Chapalla vatnsins, og við gætum borðað þar og komið heim bara næsta morgun, þar sem ég væri ekki í skólanum á þriðjudögum! Þetta hljómaði fáránlega freistandi, en klukkan var orðin margt og maður þreyttur og brenndur eftir sólina og ferðina heim:) Ég hef samt komið í húsið hans þarna í Chapalla, eins og í tímariti, með því flottara sem ég hef séð, eins og höll! Við fórum þangað seinustu helgi, ég Jenny og Theresa og 3 vinir okkar, og fórum svo til Germans að sækja hann og fórum öll saman á bát og wakeboard. Hann er mikið þarna við Chapalla vatn, þar sem hann var atvinnu wakeboarder einu sinni, vann X-games nokkur ár í röð! Ég kannski læt hann kenna mér, mér hefur ekki enn tekist að standa upp á brettinu:)

jæja, fer að koma hádegi, langur þriðjudagur framundan, kjólakaup og nóóóg af verkefnum fyrir skólann:)

kossar og knús heim frá Mexico :*

No comments:

Post a Comment