Monday, September 13, 2010

prófavika

seinasta vika og seinasta helgi var frekar dauf. Seinasta helgi fór mest í að læra, þar sem það voru first partials í vikunni sem leið. Kíktum reyndar út á föstudag og laugardag, en ég var eitthvað slöpp þannig það var frekar rólegt. á sunnudeginum seinustu var ég orðin ótrúlega slöpp en ég reyndi eins og ég gat að læra, þar sem að á mánudeginum þurfti ég að fara í 2 próf og var með 2 kynningar. Fannst ég vera alveg ólærð þegar ég mætti í skólann á mánudag og fannst mér ég ekki standa mig nógu vel enda var ég alveg að deyja. Fór til læknisins í skólanum sem sagði að ég væri komin með flensu, og 39 stiga hita. Fékk þessa fínu sprautu í rasskinnina og fullt af lyfjum og dröslaðist til að klára þennan langa 12 klukkustunda skóladag þar sem það eru engar fjarvistir leyfðar ekki einu sinni þó læknisvottorð sé við hendina.
Á þriðjudeginum var ekki skóli hjá mér, en ég var að fara í próf á miðvikudeginum þannig aftur reyndi ég að læra. Gekk ekki nógu vel, enda var ég bara fárveik. Endaði með því að kennarinn minn sagði að ég gæti tekið prófið seinna og ég ætti bara að halda mig heima á miðvikudeginum, sem ég og gerði. Þurfti reyndar að taka bussinn í skólann, fárveik, bara til þess að fá aðra sprautu í bossann frá lækninum. Síðan á fimmtudaginn var skóli, spænskupróf og kynning á viðskiptaáætlun, ég var í svitabaði, hóstandi og hás og massívt slöpp en komst samt í gegnum þann dag. Strax um kvöldið var mér farið að líða betur, sprauturnar og lyfin eitthvað farin að virka.

Á fimmtudagskvöldinu voru Junior Boys tónleikar á Americas, og allir strákarnir voru að fara svo við stelpurnar ákváðum að koma líka. Ég var uppi á 3.hæð að klára ritgerð eftir skóla á fimmtudaginn til að ég gæti komist á tónleikana, og þegar ég kláraði ritgerðina og fór niður þá voru svona 40 manns í stofunni hjá okkur því Sarah roommateinn minn var með afmæli:) Ég var ekki lengi að hressa mig við, og stuttu síðar fórum við á Americas að hitta strákana á Junior Boys tónleikunum. seinnipartinn á föstudag fórum ég, Teresa og Jenny til José vinar okkar. Sátum í sólinni við sundlaugina að sötra Tequila í Squirt sem er uppáhaldsdrykkur allra hérna. Ótrúlega ljúft að sitja bara og kjafta, og fleiri og fleiri vinir hans bættust svo í hópinn. Á endanum vorum við öll orðin ótrúlega hress og glöð og ákváðum að skella okkur á Bosse. Tjúttuðum þar smá, strákarnir keyptu flöskuborð, en fórum svo öll aftur heim til josé um 3 leitið, elduðum qesadillas og sumir fóru í sundlaugina. Bílstjórinn hans skutlaði okkur stelpunum svo heim. Alveg væri ég til í að eiga eitt stykki bílstjóra!!!

Á laugardaginn ákvað mín að reyna að næla sér í smá tan, þar sem það er búið að vera smá skýjað og regn hér í borginni seinustu daga því það voru stormar að ganga yfir suðurmexico. Ég lagðist í hengirúmið mitt, með ipodinn og dottaði on and off í 2-3 tíma. Vaknaði svo skaðbrennd með fáránlegt far eftir hálsmenið mitt haha! Burger vinur okkar kom og sótti okkur Jenny svo, rúntuðum á Starbucks í einn frappuchino, enda var mikill hiti þennan dag. Seinna um kvöldið fórum við Teresa og Jenny í Andares, glæsimollið, fórum út að borða á California Pizza Kitchen og drukkum bestu Pina Colada sem ég hef smakkað. Tókum svo taxa heim, og drifum okkur í afmæli hjá Michaelangelo, einum af strákunum. Fórum svo flest saman á stað sem heitir Van Go, rosa flottur staður, við höfðum aldrei komið þangað áður, en strákarnir eru meðlimir. Maður þarf að hafa meðlimakort með kennitölu, annars þurfa karlar að borga 10þúsund krónur inn og konur 8þúsund. Við fengum að fara inn í pörum, því hver og einn af strákunum má taka með sér vinkonu. Þetta var geggjaður staður, og okkur Jenny tókst að kynnast bæði eiganda staðarins og managernum þannig við getum farið þangað aftur án þess aðþurfa að borga aleiguna haha. Eigandinn bauð okkur upp á VIP svæðið, þar sem hann færði okkur tequilaflösku og við Jenny skemmtum okkur fram á rauða nótt.
Í morgun vöknuðum við ansi ferskar, fórum til Carlosar sem er með okkur í skóla í náttfataparty:) Smá svona þynnkuparty því allir voru að klára prófin fyrir helgi og það var vel fagnað um helgina. Komum svo heim, fórum í supermarkaðinn og við Teresa elduðum asískan hrísgrjónakjúlla. Í kvöld kom svo bróðir Carlosar að sækja mig og Sophie og við fórum til vinar hans að kjafta og horfa á The Book of Eli, sem er btw fáránlega góð mynd.

Á morgun er skóli allan daginn. Á þriðjudag er ég ekki í skólanum. Það er svo frí í skólanum á fim og fös því það er independence day á fimmtudag, þannig við stelpurnar ætlum að skrópa á miðvikudaginn og fara í almennilegt ferðalag núna á þriðjudag. Ástralarnir fóru í gær, laugardag, til Mazatlán, en við ákváðum að vera í borginni þessa helgi, og fara í skólann á mánudag, til að fá sem fæstar fjarvistir. Planið er því að taka flug eða rútu núna á þriðjudag og hitta restina af áströlunum í Mazatlán og vera fram á sunnudag bara í sólinni, skoða okkur um, borða góðan mat, og njóta þess að vera til. Áströlsku strákarnir eru allir surfarar þannig þeir ætla að kenna okkur að surfa og svona :)

Læt heyra í mér eftir ferðalagið til Mazatlán:)
Vona að allt sé gott, og það væri nú gaman að fá smá fréttir af klakanum:)

LOVE, Tori

No comments:

Post a Comment