Monday, September 13, 2010

prófavika

seinasta vika og seinasta helgi var frekar dauf. Seinasta helgi fór mest í að læra, þar sem það voru first partials í vikunni sem leið. Kíktum reyndar út á föstudag og laugardag, en ég var eitthvað slöpp þannig það var frekar rólegt. á sunnudeginum seinustu var ég orðin ótrúlega slöpp en ég reyndi eins og ég gat að læra, þar sem að á mánudeginum þurfti ég að fara í 2 próf og var með 2 kynningar. Fannst ég vera alveg ólærð þegar ég mætti í skólann á mánudag og fannst mér ég ekki standa mig nógu vel enda var ég alveg að deyja. Fór til læknisins í skólanum sem sagði að ég væri komin með flensu, og 39 stiga hita. Fékk þessa fínu sprautu í rasskinnina og fullt af lyfjum og dröslaðist til að klára þennan langa 12 klukkustunda skóladag þar sem það eru engar fjarvistir leyfðar ekki einu sinni þó læknisvottorð sé við hendina.
Á þriðjudeginum var ekki skóli hjá mér, en ég var að fara í próf á miðvikudeginum þannig aftur reyndi ég að læra. Gekk ekki nógu vel, enda var ég bara fárveik. Endaði með því að kennarinn minn sagði að ég gæti tekið prófið seinna og ég ætti bara að halda mig heima á miðvikudeginum, sem ég og gerði. Þurfti reyndar að taka bussinn í skólann, fárveik, bara til þess að fá aðra sprautu í bossann frá lækninum. Síðan á fimmtudaginn var skóli, spænskupróf og kynning á viðskiptaáætlun, ég var í svitabaði, hóstandi og hás og massívt slöpp en komst samt í gegnum þann dag. Strax um kvöldið var mér farið að líða betur, sprauturnar og lyfin eitthvað farin að virka.

Á fimmtudagskvöldinu voru Junior Boys tónleikar á Americas, og allir strákarnir voru að fara svo við stelpurnar ákváðum að koma líka. Ég var uppi á 3.hæð að klára ritgerð eftir skóla á fimmtudaginn til að ég gæti komist á tónleikana, og þegar ég kláraði ritgerðina og fór niður þá voru svona 40 manns í stofunni hjá okkur því Sarah roommateinn minn var með afmæli:) Ég var ekki lengi að hressa mig við, og stuttu síðar fórum við á Americas að hitta strákana á Junior Boys tónleikunum. seinnipartinn á föstudag fórum ég, Teresa og Jenny til José vinar okkar. Sátum í sólinni við sundlaugina að sötra Tequila í Squirt sem er uppáhaldsdrykkur allra hérna. Ótrúlega ljúft að sitja bara og kjafta, og fleiri og fleiri vinir hans bættust svo í hópinn. Á endanum vorum við öll orðin ótrúlega hress og glöð og ákváðum að skella okkur á Bosse. Tjúttuðum þar smá, strákarnir keyptu flöskuborð, en fórum svo öll aftur heim til josé um 3 leitið, elduðum qesadillas og sumir fóru í sundlaugina. Bílstjórinn hans skutlaði okkur stelpunum svo heim. Alveg væri ég til í að eiga eitt stykki bílstjóra!!!

Á laugardaginn ákvað mín að reyna að næla sér í smá tan, þar sem það er búið að vera smá skýjað og regn hér í borginni seinustu daga því það voru stormar að ganga yfir suðurmexico. Ég lagðist í hengirúmið mitt, með ipodinn og dottaði on and off í 2-3 tíma. Vaknaði svo skaðbrennd með fáránlegt far eftir hálsmenið mitt haha! Burger vinur okkar kom og sótti okkur Jenny svo, rúntuðum á Starbucks í einn frappuchino, enda var mikill hiti þennan dag. Seinna um kvöldið fórum við Teresa og Jenny í Andares, glæsimollið, fórum út að borða á California Pizza Kitchen og drukkum bestu Pina Colada sem ég hef smakkað. Tókum svo taxa heim, og drifum okkur í afmæli hjá Michaelangelo, einum af strákunum. Fórum svo flest saman á stað sem heitir Van Go, rosa flottur staður, við höfðum aldrei komið þangað áður, en strákarnir eru meðlimir. Maður þarf að hafa meðlimakort með kennitölu, annars þurfa karlar að borga 10þúsund krónur inn og konur 8þúsund. Við fengum að fara inn í pörum, því hver og einn af strákunum má taka með sér vinkonu. Þetta var geggjaður staður, og okkur Jenny tókst að kynnast bæði eiganda staðarins og managernum þannig við getum farið þangað aftur án þess aðþurfa að borga aleiguna haha. Eigandinn bauð okkur upp á VIP svæðið, þar sem hann færði okkur tequilaflösku og við Jenny skemmtum okkur fram á rauða nótt.
Í morgun vöknuðum við ansi ferskar, fórum til Carlosar sem er með okkur í skóla í náttfataparty:) Smá svona þynnkuparty því allir voru að klára prófin fyrir helgi og það var vel fagnað um helgina. Komum svo heim, fórum í supermarkaðinn og við Teresa elduðum asískan hrísgrjónakjúlla. Í kvöld kom svo bróðir Carlosar að sækja mig og Sophie og við fórum til vinar hans að kjafta og horfa á The Book of Eli, sem er btw fáránlega góð mynd.

Á morgun er skóli allan daginn. Á þriðjudag er ég ekki í skólanum. Það er svo frí í skólanum á fim og fös því það er independence day á fimmtudag, þannig við stelpurnar ætlum að skrópa á miðvikudaginn og fara í almennilegt ferðalag núna á þriðjudag. Ástralarnir fóru í gær, laugardag, til Mazatlán, en við ákváðum að vera í borginni þessa helgi, og fara í skólann á mánudag, til að fá sem fæstar fjarvistir. Planið er því að taka flug eða rútu núna á þriðjudag og hitta restina af áströlunum í Mazatlán og vera fram á sunnudag bara í sólinni, skoða okkur um, borða góðan mat, og njóta þess að vera til. Áströlsku strákarnir eru allir surfarar þannig þeir ætla að kenna okkur að surfa og svona :)

Læt heyra í mér eftir ferðalagið til Mazatlán:)
Vona að allt sé gott, og það væri nú gaman að fá smá fréttir af klakanum:)

LOVE, Tori

Wednesday, September 1, 2010

Hitt og þetta


Mikið ótrúlega eru Mexicanar ljúfir. Það er sama hvar maður er, ef maður er að hitta fólk í fyrsta skipti þá kyssa allir mann á kynnina og kynna sig! Líka ef maður hittir stráka sem maður hefur talað við einhverntímann áður, þá koma þeir og kyssa mann á kynnina. Hugsið ykkur bara ef að í hvert skipti sem þið hittið vin ykkar þá mynduð þið gera það. Skiptir engu máli hversu miklir töffarar eiga í hlut, þetta er alltaf svona.

Í gær hélt Jenny matarboð. Hún er grænmetisæta svo hún eldaði portobellosveppi, tofu"kjöt"bita með sesamfræjum, ferskan aspas, marroccan grænmetis curry og svo var nóg af grænmeti. Hún bauð öllum áströlunum sem eru hérna í skiptinámi þannig ég var sú eina sem var ekki ástrali:) Seinna um kvöldið komu þó Roberto mexicaninn sem býr með okkur heim og Sara franska svo þau slógust í hópinn. Einn strákurinn kom með 6kílógrömm af súkkulaði, bræddi það og hrærði saman við rjóma og úr varð einn óhollasti eftirréttur sem ég hef smakkað, en góður var hann:) Þegar leið á kvöldið kom Guillermo vinur Jenny og mín í heimsókn með 2 vini sína. Annar vinurinn er að fara að fá sér tattoo með Sigurrósartexta og eeeelskar Sigurrós. Hann er að spila í hljómsveit og seinna um kvöldið keyrðum við framhjá riiisastóru skilti með mynd af honum og bandinu hans, þar sem þeir eru að fara að spila núna á morgun, fimmtudag. Kannski við Jenny kíkjum og tékkum á honum spila:) Allavega, þegar Guillermo mætti með vini sína þá auðvitað komu þeir til manns og kysstu mann á kynnina:) Þetta er svo skemmtilegur siður!

Allavega, okkur tókst að koma öllum áströlunum út úr húsinu rétt eftir miðnætti því restin af fólkinu sem býr með okkur þurfti að fara að sofa og svona. Það var anniversary á stúdentabar sem heitir Wall Street, svo allir fóru þangað og ég og Jenny, Guillermo og vinirnir 2 ætluðum að hitta alla þar stuttu síðar. Loksins þegar við lögðum af stað, þá stoppar löggan okkur. Mér varð frekar órótt þegar ég leit í baksýnisspegilinn í myrkrinu og sá dökka lögreglumenn í skotheldum vestum með vélbyssur á lofti nálgast bílinn. Löggan hérna er ofboðslega spillt, oftar en ekki stoppar hún fólk fyrir minnstu atriði og býðst til að sleppa fólki ef það gefi sér nú bara smá svona fyrir kaffinu. Oft dugir 500kall eða þúsundkall og málið er dautt. Hugsa sér. En allavega, þarna voru 4 vopnaðir löggumenn og ég vissi að það væri eitthvað slæmt í vændum. Jenny og Guillermo voru í bíl á undan okkur og ég var í bíl með vinunum tveimur. Löggurnar báðu strákana um að koma út úr bílnum, en strákarnir sögðu mér að halda kyrru fyrir inni í bílnum. Ég sá allt sem gerðist, löggan leitaði á þeim, sagði þeim að snúa sér að bílnum og ætlaði að járna strákana. Önnur lögga reif upp bílhurðina þar sem ég sat og lýsti með vasaljósi og skoðaði allt. Spurði mig allskonar spurninga á spænsku, hver ég væri, hvaðan ég væri, hvað ég væri að gera og svona, að ég held bara til að trufla mig frá því að fylgjast með hvað þeir væru að gera við strákana. Löggan ætlaði að setja strákana í járn og sagðist ætla að setja þá í fangelsi, þeir væru í djúpum skít. Strákarnir voru kurteisir og sögðu bara að þeir vildu fá að vita hvað í ósköpunum þeir hefðu gert af sér, þeir mættu alveg járna þá og stinga þeim í steininn bara ef þeir gætu gefið þeim ástæðu. Löggan sagði bara að þeir væru bara í vondum málum, það biði þeirra ískalt fangelsi og að þetta væri bara búið fyrir þá. Strákarnir voru blásaklausir, við vorum bara að keyra og ekkert í gangi. Annar strákurinn er sonur embættismanns skilst mér, eða einhvers fasteignakalls, og hann tók því upp símann sinn og hringdi í lífvörð pabba síns, sagði að löggan gæti útskýrt þetta fyrir honum. Löggan sagði honum að láta símann vera, en strákurinn sagði að þeim væri velkomið að járna sig en hann vildi bara láta pabba sinn og lífvörðinn vita hvað væri í gangi. Þá leit löggan á skilríkin hans, kannaðist við eftirnafnið og sagði strákunum að drulla sér í burtu!!!

Við sluppum þarna með skrekkinn, en löggan á þetta til. Reynir að hræða fólk þannig að maður dregur upp 5þúsundkall kjökrandi og grátbiður þá um að járna sig ekki. Sem betur fer urðu strákarnir ekki hræddir og sögðu að löggan mætti gera hvað sem þeir þyrftu að gera, bara svo lengi sem hann léti þá pabba sinn vita hvað væri í gangi. Löggan hefði auðvitað ekkert getað mætt með 2 blásaklausa stráka og stungið þeim í steininn, þetta var bara til að reyna að hræða okkur og græða pening.

Í dag var ég í skólanum til 5. Búin að vera ótrúlega þreytt í allt kvöld, miðvikudagar eru aðal djammdagarnir, en ég er bara í náttfötunum með heitt kakó, tónlist og Jenny er hérna hjá mér að læra:) Próf á morgun, og svo verður næsta vika helluð. Endalaus próf, ritgerðir og verkefni!! Guillermo og strákarnir buðu okkur Jenny að koma með sér þessa helgi á einhverja einkaeyju sem fjölskylda annars stráksins á. (þessi sem hringdi í lífvörðinn). Það væri óskandi að komast á ströndina þessa helgina, halda í tanið sem ég nældi mér í á Sayulita seinustu helgi, en ég held að við endum í bænum þessa helgina, að læra og svona. Mikið væri samt notarlegt að komast í smá roadtrip, taka bara bækurnar með og slaka á í sandinum. Við sjáum til hvernig fer. Næsta vika verður helluð í skólanum og svo helgina eftir þá förum við í 9 daga ferðalag suður til Mexico að skoða allan suðurhlutann, pýramída og merka staði. Hlakka mikið til!

Theresa fer á morgun til San Fransisco. Ég náði að versla mér nokkra skó og svona sem hún ætlar að koma með til mín. Þrátt fyrir að Berskha og skóbúðir hérna séu mjööög ódýrar, þá er maður farinn að borga tvöfalt verð þegar maður er að kaupa Nike, Aldo skó, Nine West eða álíka merki. Málið er að það eru engin gæði í ódýru skóbúðunum og skórnir bara hrynja í sundur. Þessvegna ætlar Theresa að vera engill og koma með 4 ný pör handa mér úr uppáhalds búðinni minni:)

ég er ennþá svo heilluð eftir seinustu helgi.... hugsa sér, við vorum þarna sirka 10 krakkar 20-23 ára, með heilt resort útaf fyrir okkur. 10 manns á vakt allan sólarhringinn, bara fyrir okkur. Þjónar, þriffólk, kokkar, sundlaugavörður, öryggisvörður, bílstjóri oflr. Þessi helgi var svo mögnuð. Gome, strákurinn sem bauð mér er að fara til Kína núna um helgina og verður í 1 ár. Dáldil synd að hann skuli vera að fara. Hitti hann kannski á morgun, hann ætlar að sýna mér dýrin sín. Mamma hans er grænmetisæta og berst fyrir dýraréttindum og friðun Jagúara á vesturströnd Mexico. Þau áttu 2 jagúarhvolpa í 2 ár, en í fyrra dóu þeir báðir þegar stóri fellibylurinn gekk yfir. Þau áttu líka úlf sem dó fyrir 2 árum, 12 ára gamall. Núna eiga þau einhverskonar apa/þvottabjarnadýr sem ég veit ekki hvað heita á íslensku. Heyrði hljóðin í þeim um daginn þegar ég fór heim til Gome, en náði ekki að sjá þau. Hlakka til að sjá þau vonandi á morgun og fá að halda á þeim:)

Á í miklum erfiðleikum með að ákveða hvernig helgin verður, hvort við Jenny ættum að taka stefnuna á ströndina, jafnvel þá á eyjuna með Guillermo og vinum hans... eða hvort við ættum að vera bara í bænum, læra og kíkja út um helgina. Juan Pablo vinur minn, sem ég fór með til Manzanillo á ströndina þarseinustu helgi, er að fara aftur til Ítalíu á sunnudag, þar sem hann er í skóla, þannig ég sé hann svo ekkert aftur fyrr en um jólin. Gome og strákarnir sem við vorum með um helgina eru líka að fara að halda kveðjuparty handa Gome á einum skemmtistaðnum þar sem hann fer svo til Kína á sunnudag. Og ég hef ekki hitt Daniel vin minn heillengi og hann var að biðja mig um að koma að gera eitthvað skemmtilegt um helgina, þannig það er svosem nóg að gerast í borginni:) Langar samt mikið í sand og hita, því svo verð ég næstu 2 helgar með krökkunum úr skólanum að ferðast um suðurMexico, með derhúfu, í ljótum sandölum og með bakpoka haha:)

ó, já, seinustu helgin þegar við vorum með Gome í Sayulita þá keyrðum við á sunnudeginum til Puerto Vallarta. Puerto Vallarta er bara í 15 min akstri, Sayulita ströndin tekur við af Puerto Vallarta. Við Jenny vildum eyða sunnudeginum í að fá bílstjórann til að skutla okkur í miðbæ Puerto Vallarta og svo gætum við tvær eytt deginum þar, keypt fallega minjagripi, handofin teppi og skoðað okkur um. Gome tók það ekki í mál, því það hafði sprungið sprengja, granade, á klúbb þarna í Puerto Vallarta á fimmtudeginum. 16 manns alvarlega slasað og það þurfti að aflima amk 2. Innherjaupplýsingar segja það að þessi sprengjuárás sé merki um að þetta verði næsti átakastaður gengjanna, þeas að á næstunni muni þessi bær vera targetið þeirra og eitthvað mjög slæmt gerast. Þessvegna vildi Gome alls ekki leyfa okkur að fara þarna um, svo úr varð að hann kom með okkur og bílstjórinn keyrði okkur í gegnum bæinn í skothelda bílnum bara svo við gætum fengið að sjá það helsta í bænum. Betra að vera öruggur. Svo sprakk sprengja líka núna um helgina í Cancún, þar sem ég ætla að ferðast um í páskafríinu. 8 manns létust. Þetta er nú ljóta ástandið hérna.

En ég hef það ótrúlega gott, ætla að halda áfram að læra smá núna fyrir prófið á morgun! Market Intelligence- ég rústessu :)

Kossar og knús á klakann
- Tori <3